Björn Diljan Hálfdanarson
bdh@mbl.is
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Kristján Örn Elíasson hafa tilkynnt framboð sín til embættis forseta Skáksambands Íslands. Kosningar fara fram á aðalfundi sambandsins þann 14. júní næstkomandi.
Gunnar Björnsson, sitjandi forseti sambandsins, hefur gefið það út að hann hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri á fundinum. Gunnar hefur gegnt embætti forseta í 16 ár, frá árinu 2009.
Kristján Örn, markaðsfræðingur og alþjóðlegur skákdómari, hefur starfað innan skákhreyfingarinnar í hartnær þrjátíu ár og segir að tími sé kominn á nýjan forseta með nýjar áherslur. Kristján bauð sig fram til forseta árið 2023 en laut þar í lægra haldi fyrir Gunnari. Kristján leggur áherslu á að forseti sambandsins eigi ekki að starfa samhliða sem framkvæmdastjóri þess. Gunnar hefur gegnt embættum forseta og framkvæmdastjóra síðustu árin.
Jóhanna Björg hefur starfað innan hreyfingarinnar frá árinu 2018 og hefur á þeim tíma gegnt ýmsum embættum, þar á meðal embætti varaforseta sambandsins. Jóhanna leggur áherslu á að auka fjölbreytni innan hreyfingarinnar og segist vilja tryggja traustan grunn fyrir komandi kynslóðir skákmanna og -kvenna.