Kjartan Leifur Sigurðsson
kjartanleifur@mbl.is
Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna tengingar greiðslna úr almannatryggingakerfinu nemi uppsafnað um 10-11 milljörðum króna undir lok tímabils fjármálaáætlunar. Miðað við forsendur fjárlaga fyrir árið 2025 hefði kostnaður vegna greiðslna bóta hækkað um 3-4 milljarða.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið útbjó fyrir velferðarnefnd Alþingis og birt var á vef Alþingis í gær. Frumvarp sem kveður á um tengingu bóta úr almannatryggingakerfinu er nú í meðferð hjá nefndinni, en frumvarpið var lagt fram af Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Greiningar ófullnægjandi
Í minnisblaðinu segir að frumvarpið feli í sér sjálfvirka hækkun sem geti stangast á við markmið um sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma. Fjármála- og efnahagsráðuneytið segist í minnisblaðinu taka undir álitsgerð fjármálaráðs þess efnis að ekki liggi fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum frumvarpsins. Örorkulífeyrir og ellilífeyrir hafa samkvæmt minnisblaðinu hækkað umfram vísitölu neysluverðs og launavísitölu frá 1997 til 2023.
Þá kemur fram í minnisblaðinu að útgjöld ríkissjóðs séu ekki beintengd vísitölu og því væri nýmæli að tengja bótagreiðslur við launavísitölu.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í velferðarnefnd, segir í samtali við blaðið að ráðuneytið taki í minnisblaðinu undir þau sjónarmið sem hann hafi talað fyrir í nefndinni, en það stangist
á við lög um opinber fjármál að tengja bótagreiðslur við launavísitölu.
Hann segist vona að minnisblaðið muni vekja meirihlutann til umhugsunar um málið en hann segir það eina rétta í stöðunni vera að fresta afgreiðslu frumvarpsins.
Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknarflokksins situr í velferðarnefnd. Hún segir að eins og með önnur mál ríkisstjórnarinnar beri frumvarpið það með sér að fullnægjandi greiningar skorti. Hún segir að bent hafi verið á það að frumvarpið muni hafa verðbólguhvetjandi áhrif en ólíklegt er að sögn Ingibjargar að málið verði klárað óbreytt.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir formaður velferðarnefndar vildi ekki tjá sig um minnisblaðið þegar eftir því var leitað og ekki náðist í flutningsmann frumvarpsins, Ingu Sæland.