Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir
Ísland var ekki meðal þeirra níu Evrópuþjóða sem skrifuðu undir yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem farið er fram á endurmat á núgildandi túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á réttindum hælisleitenda sem gerst hafa uppvísir að glæpum

Ísland var ekki meðal þeirra níu Evrópuþjóða sem skrifuðu undir yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem farið er fram á endurmat á núgildandi túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á réttindum hælisleitenda sem gerst hafa uppvísir að glæpum.

Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í gær sagði Kristrún Frostadóttir að ekki hefði borist sérstök beiðni um þátttöku frá ríkjunum þegar hún var spurð út í það af hverju Ísland hefði ekki verið með. Sagði hún mikilvægara að klára þau mál sem þegar væru til afgreiðslu hjá þinginu, svo sem afturköllun á alþjóðlegri vernd einstaklinga og gangsetningu lokaðs búsetuúrræðis á landamærunum.

Ekki þyrfti að standa í gagnrýni á Mannréttindasáttmála Evrópu til þess að vinna að umbótum á Íslandi. » 13