Dagmál Björn Brynjúlfur Björnsson fer yfir nýjustu úttekir Viðskiptaráðs.
Dagmál Björn Brynjúlfur Björnsson fer yfir nýjustu úttekir Viðskiptaráðs.
Lög um opinbera starfsmenn hljóma ekki mjög öfgafull á yfirborðinu en þegar lögin eru borin saman við þá uppsagnarvernd sem starfsfólk í einkageiranum hefur kemur í ljós að opinberir starfsmenn njóta þrefaldrar uppsagnarverndar

Lög um opinbera starfsmenn hljóma ekki mjög öfgafull á yfirborðinu en þegar lögin eru borin saman við þá uppsagnarvernd sem starfsfólk í einkageiranum hefur kemur í ljós að opinberir starfsmenn njóta þrefaldrar uppsagnarverndar.

Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs ræðir um nýlega úttekt ráðsins í Dagmálum í dag.

„Þetta hefur reynst þannig að þeim sem er sagt upp er yfirleitt ráðlagt að lögsækja ríkið og þeir vinna iðulega þessi mál af því að formkröfurnar eru orðnar mjög strangar,“ segir Björn.

Viðskiptaráð áætlar að ríkari uppsagnarvernd opinberra starfsmanna kosti ríki og sveitarfélög 30 til 50 ma. kr. á ári.

Björn ræðir einnig um nýjustu úttekt ráðsins um innritun í framhaldsskóla og námsmat í grunnskólum. » 14