Þórshöfn Kappsigling á fiskikörum milli bryggjukanta var vinsæl og börn á öllum aldri skemmtu sér vel. Björgunarsveitin var skammt undan á slöngubáti, til að tryggja öryggið.
Þórshöfn Kappsigling á fiskikörum milli bryggjukanta var vinsæl og börn á öllum aldri skemmtu sér vel. Björgunarsveitin var skammt undan á slöngubáti, til að tryggja öryggið. — Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á sjómannadeginum var margt til gamans gert á Þórshöfn en gleðin hófst með siglingu um morguninn. Um hádegið var fjölmennt á Holtið þar sem Langanesbyggð bauð upp á kræsingar – ljúffenga súpu og bjargfuglaegg – en síðan lá leiðin að höfninni

Líney Sigurðardóttir

Þórshöfn

Á sjómannadeginum var margt til gamans gert á Þórshöfn en gleðin hófst með siglingu um morguninn. Um hádegið var fjölmennt á Holtið þar sem Langanesbyggð bauð upp á kræsingar – ljúffenga súpu og bjargfuglaegg – en síðan lá leiðin að höfninni.

Þar stóð Björgunarsveitin Hafliði fyrir líflegri dagskrá og uppákomum sem vöktu mikinn fögnuð gesta, ekki síst yngri kynslóðarinnar, sem tók þátt í fjörinu.

Rúsínan í pylsuendanum var kaffihlaðborð björgunarsveitarinnar, veglegt að vanda en dregið var í happdrætti sveitarinnar þar sem vinningar voru ekki af verri endanum.

Á Bakkafirði var sjómannadagsgleðin haldin á laugardeginum, þar sem hátíðin Grásleppan 2025 var haldin. Veðrið sýndi á sér spari-
hliðina á þessum hátíðum í Langanesbyggð en næsti hvellur er kominn.

Höf.: Líney Sigurðardóttir