Keir Starmer
Keir Starmer
Smíðaðir verða 12 kjarnorkuknúnir árásarkafbátar á næstu árum og mun breski sjóherinn fá fyrstu báta í sína þjónustu í kringum árið 2030. Breytt landslag í öryggismálum Evrópu samhliða útþenslustefnu Rússlands kallar á mikla uppbyggingu breska heraflans

Smíðaðir verða 12 kjarnorkuknúnir árásarkafbátar á næstu árum og mun breski sjóherinn fá fyrstu báta í sína þjónustu í kringum árið 2030. Breytt landslag í öryggismálum Evrópu samhliða útþenslustefnu Rússlands kallar á mikla uppbyggingu breska heraflans. Bretland verður að búa yfir hersveitum sem eru reiðubúnar til vopnaðra átaka á útbreiddu svæði. Þetta segir Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands.

Áhersla verður m.a. einnig lögð á netöryggi, þróun og framleiðslu á langdrægum vopnakerfum, s.s. eldflaugum og árásardrónum, uppbyggingu innviða og endurnýjun herstöðva. Þá verður einnig nýliðun stórefld í hersveitum Bretlands á næstu árum.