Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Starfsmenn Reykjavíkurborgar, alls 18 að tölu, fjölmenntu til Póllands í maí til að fræðast um hvernig frístundastarfi er háttað þar í landi.
Heimsóknin var svonefnd „study-visit“ ferð, samkvæmt svari frá Reykjavíkurborg við fyrirspurn Morgunblaðsins, og fékkst styrkur fyrir allri ferðinni frá Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Kostnaður af ferðinni er ekki upplýstur í svarinu eða nöfn þeirra sem fóru í hana.
Skipst á hugmyndum
„Tilgangur ferðarinnar var meðal annars að skoða félagsmiðstöðvar og fræðast hvernig frístundastarfi þar er háttað. Einnig til að kynnast landi og þjóð en hér á landi búa mörg börn og unglingar með pólskan bakgrunn. Bæði var farið í heimsókn í stóra og litla félagsmiðstöð, hópurinn kynnti sér frístundastarf fyrir fötluð börn, heimsótti háskóla og átti samtal við embættisfólk og ungmenni. Skipst var á hugmyndum og tengslum komið á fyrir fyrirhuguð ungmennaskipti sem mikill áhugi er fyrir,“ segir í svarinu.
Alls fóru 18 starfsmenn, forstöðumenn og/eða aðstoðarforstöðumenn félagsmiðstöðva sem tilheyra Austurmiðstöð í ferðina, auk deildarstjóra frístundamiðstöðvarinnar Brúarinnar. Félagsmiðstöðvarnar sem áttu fulltrúa eru eftirfarandi: Vígyn, Plútó, Höllin, Holtið, Fjörgyn, Fellið, Ársel, Sigyn og Fókus.
Hópurinn dvaldi aðallega í Katowice en líka í Kraká og gestgjafi var Youth Cultural Centre No. 2 í Piekary Slaskie.