Kertsj-brúin SBU sendi frá sér myndskeið í gær sem sýndi sprenginguna sem varð í undirstöðum Kertsj-brúarinnar, en hún tengir Rússland við Krímskaga. Loka þurfti brúnni fyrir umferð í tvígang yfir daginn vegna árásarinnar.
Kertsj-brúin SBU sendi frá sér myndskeið í gær sem sýndi sprenginguna sem varð í undirstöðum Kertsj-brúarinnar, en hún tengir Rússland við Krímskaga. Loka þurfti brúnni fyrir umferð í tvígang yfir daginn vegna árásarinnar. — AFP/Leyniþjónusta Úkraínu, SBU
Úkraínska leyniþjónustan SBU lýsti því yfir í gær að hún hefði ráðist á Kertsj-brúna, sem tengir Rússland við Krímskaga. Er þetta þriðja staðfesta árás Úkraínumanna á brúna frá því að innrás Rússa hófst árið 2022

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Úkraínska leyniþjónustan SBU lýsti því yfir í gær að hún hefði ráðist á Kertsj-brúna, sem tengir Rússland við Krímskaga. Er þetta þriðja staðfesta árás Úkraínumanna á brúna frá því að innrás Rússa hófst árið 2022.

Í yfirlýsingu SBU kom fram að árásin hefði að þessu sinni verið framkvæmd neðansjávar, og höfðu útsendarar SBU komið fyrir um 1.100 kílógrömmum af sprengiefni við undirstöður brúarinnar. Þá sagði einnig að aðgerðin hefði verið nokkra mánuði í undirbúningi.

Lokað var fyrir umferð um brúna í um fjóra klukkutíma um morguninn og aftur síðdegis í rúman klukkutíma vegna árásarinnar, og myndaðist nokkur umferðarteppa beggja megin við Kertsj-sundið af hennar völdum. Þá sögðu umsjónarmenn brúarinnar á Telegram-samskiptaforritinu að þeir óskuðu eftir ró hjá þeim sem væru þegar á brúnni á meðan öryggisskoðun færi fram.

Óstaðfestar fregnir bárust á samfélagsmiðlum um frekari sprengingar við brúna um daginn, sem og annars staðar á Krímskaga, en örðugt var að greina hvað var rétt í þeim efnum
í gær. Rússneskir herbloggarar sögðu líklegra að árás Úkraínumanna um morguninn hefði verið framkvæmd
af neðansjávardróna en að sprengiefni hefði verið komið fyrir einhvern tímann á síðustu vikum eða mánuðum.

Úkraínumenn réðust fyrst á brúna árið 2022 og aftur 2023, og þurfti að loka henni tímabundið í bæði skiptin. Sagði Vasíl Maljúk, yfirmaður leyniþjónustunnar SBU, í yfirlýsingu hennar að engin ólögleg mannvirki ættu heima á úkraínsku landsvæði, en brúin var opnuð árið 2018, fjórum árum eftir að Rússar innlimuðu Krímskaga með ólöglegum hætti.

Sagði Maljúk að brúin væri lögmætt skotmark fyrir Úkraínumenn, sér í lagi þar sem hún þjónaði einnig mikilvægu hlutverki fyrir hernámslið Rússa í Úkraínu sem birgðalína.

Árásin í gærmorgun kom einungis tveimur dögum eftir að SBU náði að ráðast á langdrægar sprengjuvélar Rússa á rússneskum herflugvöllum, en Úkraínumenn segjast hafa náð að eyða um þriðjungi allra slíkra véla sem Rússar hafi yfir að ráða.

Rússar sökuðu Úkraínumenn í gær jafnframt um að hafa ráðist gegn járnbrautarbrú í Bríansk-héraði um helgina með þeim afleiðingum að farþegalest fór út af sporinu og sjö manns fórust. Úkraínumenn hafa hins vegar neitað allri sök og vísað ábyrgðinni á hendur Rússum.

Höf.: Stefán Gunnar Sveinsson