Elínborg Una Einarsdóttir
elinborg@mbl.is
Nokkuð mikið var um að vera hjá björgunarsveitum og öðrum viðbragðsaðilum í gær vegna norðanóveðurs sem gekk yfir landið. Á Norðurlandi þurfti að koma sauðfé í skjól vegna snjókomu og undir Eyjafjöllum fauk húsbíll á hliðina.
Í gærnótt snjóaði til fjalla á annesjum á norðanverðu og austanverðu landinu og festi snjó víða á láglendi á Flateyjarskaga og Tröllaskaga.
Veðurstofa Íslands hafði gefið út appelsínugular og gular viðvaranir fyrir landið allt vegna storms, úrkomu og hríðar. Fyrstu viðvaranirnar tóku gildi aðfaranótt þriðjudags og á norðanverðu landinu standa þær yfir til hádegis í dag en áfram má búast við mikilli úrkomu. Veðurstofan hefur vegna þessa varað við auknum líkum á skriðuföllum.
Þá lýstu almannavarnir yfir óvissustigi á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.
Víða á Norðurlandi þurfti að koma sauðfé í skjól vegna snjókomunnar og sinntu björgunarsveitir því verkefni. „Dagurinn er bara búinn að vera erfiður, hreint út sagt. Þetta voru krefjandi aðstæður. Það var mikill snjór í bökkum, gildrögum og börðum og eitthvað af því fé sem við fundum var fennt,“ sagði Björn Már Björnsson úr Björgunarsveitinni Dalvík í samtali við blaðamann mbl.is í gær.
Forðast hefði mátt útkallið
Hann talaði um að erfitt hefði verið að reka féð heim í hús, meðal annars vegna þess að féð var kleprað og þá sérstaklega lömbin, sem mörg hver báru á sér snjóköggla sem björgunarsveitarmenn þurftu að kroppa af með nokkurra metra millibili sökum þess að lömbin gátu ekki lengur hreyft fram- eða afturlappirnar.
Þá bætti Björn við að forðast hefði mátt þetta erfiða útkall ef bændur hefðu fylgst betur með veðurspá og brugðist fyrr við.
„Það sem vakir líka fyrir okkur er að ef beðið hefði verið um aðstoð í gær hefði þetta tekið tvo tíma. Þetta hefði ekkert þurft að fara svona og ég vil bara hreinlega að það komi fram. Þetta er bara hrikalegt vanmat og hugsunarleysi hjá þessum einstaka bónda.“
Útköll viðbragðsaðila í gær snerust ekki aðeins um sauðfé sem var í vanda statt, en á Suðurlandi þurftu björgunarsveitir að koma ferðamönnum á tjaldstæði til bjargar um morguninn vegna mikils hvassviðris. Það stóð áfram fram eftir degi en undir kvöld fauk húsbíll á hliðina í grennd við Hvamm undir Eyjafjöllum.
Á vef Vegagerðarinnar er því beint til vegfarenda að fara áfram með gát í dag og að fylgjast mjög vel með færð og veðri ef ekið er á milli landshluta.