Sýningarnar Höfuðskepnur og Erró: Remix verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi annað kvöld kl. 20. Við sama tilefni verður veitt viðurkenning úr Listasjóði Guðmundu S
Sýningarnar Höfuðskepnur og Erró: Remix verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi annað kvöld kl. 20. Við sama tilefni verður veitt viðurkenning úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur en sjóðnum er ætlað að efla listsköpun kvenna. Í Höfuðskepnum verða kynnt nýleg verk samtímalistamanna en listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Alessa Brossmer, Hrafnkell Sigurðsson, Jóhanna Bogadóttir, Ragna Róbertsdóttir, Rúrí og Þorbjörg Jónsdóttir.