Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Spákonan og miðillinn Valgerður Bachmann, reikimeistari, dáleiðari og jóga nidra-kennari, hefur haldið skyggnilýsingar fyrir fullu húsi undanfarin þrjú til fjögur ár og verður næsta samkoma í Bíó Paradís föstudaginn 13. júní. „Það er afmælisdagur ömmu minnar og ég valdi þennan dag af því tilefni,“ segir hún um viðburðinn.
Valgerður segir að amma sín, sem andaðist 1990, hafi verið helsta öryggi sitt og komið sér á þessa leið. „Hún er sú fyrsta sem ég man eftir að hafa séð eftir að hún dó. Ég hef unnið við andleg málefni síðan 2009 og gaf síðar út bók, sem tengist ömmu Rósu, til að hjálpa börnum sem sjá, heyra og finna fyrir dánu fólki.“ Andlát ömmu sinnar hafi borið brátt að og haft mikil áhrif á sig. „Ég þurfti að horfast í augu við svo margt, átta mig á því hver ég var, en andlátið opnaði margar, stórar dyr. Ég átti erfiða æsku í tengslum við svefn og fólk sem er farið og 13. júní er stór partur af mínu lífi og fjölskyldu minnar.“
Ekki eins og aðrir
Til nánari skýringar segir Valgerður að hún hafi verið sex ára þegar amma hennar dó. „Þá áttaði ég mig á því að ég var ekki eins og hinir. Mér var sagt að hún væri farin en svo var hún það ekki fyrir mér. Ég fór að sjá hina og þessa og man til dæmis eftir því að hafa fengið skilaboð frá fólki, þegar ég var á gangi í verslun í Holtagörðum í æsku. Þá áttaði ég mig ekki á því að skilaboðin hreyfðu ekki við öðrum.“
Valgerður er sjálfstætt starfandi á höfuðborgarsvæðinu (alheimsorka.is). Hún hefur haldið fjölda námskeiða síðan 2011 og spáir fyrir fólki og sinnir miðilsstörfum, heilun og dáleiðslu í einkatímum. Hún hefur gefið út þrjú spil sem tengjast andlegum málefnum, unnið hjá sálarrannsóknarfélögum, verið með jóganámskeið fyrir börn og fullorðna og gefið út bækur.
Fyrrnefnd bók, Hulda og töfrasteinninn, fjallar um sjö ára stúlku sem á erfitt með að sofna og er með dulræna hæfileika. Valgerður byrjaði að skrifa hana þegar hún var 14 ára, en hún var lengi í smíðum og Forlagið gaf hana út 2021, um svipað leyti og bækurnar Litlu stafabókina og Litlu tölubókina, sem jafnframt eru eftir Valgerði.
Valgerður leggur áherslu á að einstaklingar upplifi skyggnilýsingar á misjafnan hátt. Á samkomum sínum biðji hún gesti um að vinna með sér úr orkunni. „Ég byrja á því að lýsa einstaklingi sem ég sé og bið fólk um að gefa til kynna ef það tengist honum.“ Hún haldi lýsingum áfram þar til aðeins einn í salnum tengist viðkomandi. „Þá færi ég skilaboð frá þeim sem ég sé. Svona heldur boltinn áfram að rúlla.“
Samkoman í Bíó Paradís er einungis fyrir 18 ára og eldri og er miðasala hafin á netinu (tix.is). Hún hefst stundvíslega klukkan 19:00 og ekki verður hleypt inn eftir það. „Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri,“ segir Valgerður. „Við tengjum öll við missi og þetta er kærleiksrík stund.“ Hún bætir við að stundum verði skyggnilýsingarnar fjörugar. „Það skiptast á gleði, hlátur og sorg. Þetta er ekki þungt heldur létt og skemmtilegt.“
Valgerður hefur verið með skyggnilýsingar víða um land og var síðast á Eyrarbakka 13. febrúar síðastliðinn. „Það var fullt hús, yfir 170 manns. Áhuginn og fjöldinn svara því best hvaða viðtökur ég hef fengið.“