Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Rjúpan mun pluma sig þrátt fyrir hret, en ég hef áhyggjur af afdrifum mófugla. Þeir munu fara illa út úr þessu andstyggilega veðri,“ segir Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur. Hann var í gær á Skútustöðum við Mývatn þar sem var krapahríð og ekki hundi út sigandi. Hret sem nú gengur yfir norðurhluta landsins mun hafa áhrif á margt í lífríkinu, sbr. þær búsifjar sem urðu í hvellinum fyrstu vikuna í júní í fyrra. Ólafur bendir þó á að þá hafi þykkur snjór legið yfir öllu landi ofan 100 m hæðarlínu. Nú sé staðan önnur og skárri, samanber að við Mývatn var í gær aðeins grátt í rót þótt slydduhríð væri áköf. Fyrir réttu ári var þar allt á kafi í snjó. Jafnframt gera spár ráð fyrir að hretið vari í aðeins tvo daga en ekki í fimm daga líkt og var í fyrra.
Fuglar sem gætu farið illa út úr veðrinu nú eru, að sögn Ólafs, til dæmis hrossagaukur, stelkur, spói, jaðrakan, lóuþræll, þúfutittlingur og skógarþröstur. Þessir fuglar liggja núna á eggjum eða eru með litla unga.
„Fálkinn stendur svona veður af sér nema þá helst ungar í hreiðrum sem eru óvarin gegn norðanátt. Þeir geta króknað og slíkt gerðist í júníhretinu í fyrra. Sama er að segja um rjúpuna, hún er norrænn fugl og ræður við svona aðstæður. Í fyrra afræktu rjúpurnar reyndar í stórum stíl hreiðrin í júníhretinu en margar þeirra urpu aftur og afkoma stofnsins í lok sumars var góð líkt og mátti sjá á rjúpnamergðinni sem mætti í varplöndin í vor.“
Bændur í Þingeyjarsýslum sem Morgunblaðið ræddi við í gær bera sig nokkuð vel þrátt fyrir hretið nú. Þeir benda á að hretið nú sé að mestu slydda og snjó á þíðri jörðu muni því fljótt taka upp. Gróður nú hafi verið kominn vel á veg, mun lengra en í hretinu fyrir ári. Þar megi þakka blíðviðrinu í síðari hluta maí. Lambfé nú hafi líka víðast hvar enn verið í heimatúnum og því auðvelt að koma öllu í skjól. » 10