Lögreglumenn frá bæði Portúgal og Þýskalandi hófu í gær nýja leit í Portúgal að Madeleine McCann, sem hvarf árið 2007 þegar hún var þriggja ára gömul á ferðalagi með foreldrum sínum. Leituðu lögreglumennirnir í gróðri og í yfirgefnu húsi í von um að …
Lögreglumenn frá bæði Portúgal og Þýskalandi hófu í gær nýja leit í Portúgal að Madeleine McCann, sem hvarf árið 2007 þegar hún var þriggja ára gömul á ferðalagi með foreldrum sínum. Leituðu lögreglumennirnir í gróðri og í yfirgefnu húsi í von um að finna sönnunargögn í máli McCann, sem gætu leitt í ljós hver örlög hennar voru.
Þýska lögreglan telur sig hafa rökstuddan grun um að Þjóðverjinn Christian Brückner hafi orðið McCann að bana, en hann er dæmdur nauðgari sem var í nágrenninu þegar McCann hvarf. Bjó hann um stund í húsinu þar sem leitin fór fram.