Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Víðis Reynissonar, formanns allsherjar- og menntamálanefndar, í tengslum við veitingu ríkisborgararéttar.
Víðir greip inn í mál Oscars Bocanegra, sem vísa átti úr landi, með því að hafa samband við Útlendingastofnun og fullyrða við stofnunina að yfirgnæfandi líkur væru á því að Oscar myndi fá íslenskan ríkisborgararétt veittan frá Alþingi. Útlendingastofnun hætti því við brottvísunina. Það er aftur á móti sérstök þriggja manna undirnefnd sem starfar undir allsherjar- og menntamálanefnd sem á að afgreiða umsóknir sem berast Alþingi um ríkisborgararétt.
„Svo tekur hann [Víðir] bara sjálfstæða ákvörðun um að hringja í Útlendingastofnun. Ég tel að hér sé bara um pólitíska ákvörðun að ræða sem enginn bragur er að og ljóst að ekki er verið að gæta jafnræðis milli umsækjenda um ríkisborgararétt sem liggur fyrir Alþingi,“ segir Guðrún í samtali við Morgunblaðið.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, sagði á Alþingi í gær að hún teldi Víði hafi brotið trúnað gagnvart allsherjar- og menntamálanefnd.
„Að mínu mati, virðulegur forseti, hefur háttvirtur formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Víðir Reynisson, brotið trúnað við háttvirta allsherjar- og menntamálanefnd.“