Ekki liggja fyrir skýringar á því hvers vegna höfuðkúpa dagaði uppi svo árum skipti í geymslum útibús Landsbanka Íslands á Ísafirði. Fornleifafræðingur hefur nú beinin í vörslu sinni en gátan er óráðin
Ekki liggja fyrir skýringar á því hvers vegna höfuðkúpa dagaði uppi svo árum skipti í geymslum útibús Landsbanka Íslands á Ísafirði. Fornleifafræðingur hefur nú beinin í vörslu sinni en gátan er óráðin. Sævar Ríkarðsson, útibússtjóri bankans vestra, segist hafa séð höfuðkúpuna fyrst fyrir um 15 árum en ekki spáð neitt í málið. Talið þetta vera kennslugagn úr skóla eða slíkt. Fyrir nokkrum dögum hafi fornleifafræðingur svo verið kallaður til og þá hafi annað komið í ljós. » 2