Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi í gær mannfall meðal Palestínumanna sem væru að sækja sér matvælaaðstoð, en 27 manns létust og að minnsta kosti 90 særðust í Rafah-borg á suðurhluta Gasasvæðisins í gær eftir að ísraelskir hermenn hófu skothríð.
Atvikið átti sér stað um einum kílómetra frá deilingarstöð bandarísku samtakanna GHF, sem hafa dreift matvælum á Gasasvæðinu síðustu daga. Sameinuðu þjóðirnar hafa gagnrýnt samtökin, en þau hafa dreift neyðaraðstoð án þess að eiga samvinnu við þær stofnanir SÞ sem eiga að sinna slíkri aðstoð.
Alþjóðaráð Rauða krossins staðfesti mannfallstölurnar í gærkvöldi, en fólkið var flutt á sjúkrahús Rauða krossins í borginni.
Talsmaður Ísraelshers sagði í gær að atvikið væri til rannsóknar, en að hermenn hefðu skotið viðvörunarskotum að hópi fólks sem fór framhjá þeim leiðum sem liggja að svæði GHF og inn á bannsvæði hersins í borginni. Þá sagði talsmaðurinn það vera af og frá að hermenn væru að reyna að koma í veg fyrir að Palestínumenn á Gasasvæðinu fengju neyðaraðstoð, en svipað atvik átti sér einnig stað á sunnudaginn, en þá féll 31 maður.
Guterres sagði í yfirlýsingu sinni að það væri „óásættanlegt“ að fólk sem leitaði sér neyðaraðstoðar væri að hætta lífi sínu og í sumum tilfellum að týna lífi. Hvatti hann til óháðrar rannsóknar á atvikunum.
Volker Turk, yfirmaður mannréttindamála hjá SÞ, fordæmdi einnig atvikið og sagði að árásir sem þessar á óbreytta borgara teldust vera „alvarlegt brot á alþjóðalögum og stríðsglæpur“.
Talsmenn Hvíta hússins sögðu í gær að verið væri að staðreyna þær upplýsingar sem komið hefðu fram um árásina á Gasasvæðinu. Það tæki sinn tíma, því að ekki væri tekið mark á yfirlýsingum frá hryðjuverkasamtökunum Hamas.