Sævar Ríkharðsson
Sævar Ríkharðsson
Ekki eru skýringar á því hvers vegna höfuðkúpa dagaði uppi svo árum skipti í útibúi Landsbankans á Ísafirði. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær kallaði starfsfólk bankas vestra til fornleifafræðing á dögunum til þess að líta á og greina þessi mannabein

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Ekki eru skýringar á því hvers vegna höfuðkúpa dagaði uppi svo árum skipti í útibúi Landsbankans á Ísafirði. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær kallaði starfsfólk bankas vestra til fornleifafræðing á dögunum til þess að líta á og greina þessi mannabein. Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur staðfestir að beinin séu upprunaleg – ekta – og nú stendur til að þeim verði komið til Þjóðminjasafns Íslands eins og vera ber. Nánari greining á beinunum er talin vera æskileg en gæti verið mjög kostnaðarsöm.

Ofin innan í plast í eldtraustri peningageymslu

„Já, þetta mál hefur vakið talsverða athygli,“ segir Sævar Ríkharðsson, útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði, í samtali við Morgunblaðið í gær spurður um málavexti eins og þeir horfa við honum.

„Já, það var fljótlega eftir að ég kom til starfa hér á Ísafirði fyrir um 15 árum að ég var að róta einhverju í dóti í hillum og kössum í eldtraustri peningageymslu í kjallara gamla bankahússins. Þá fann ég þessa höfuðkúpu sem var vafin innan í plast. Álykaði þá sem svo að þetta væri kennslugagn úr skóla eða eitthvað slíkt sem hefði borist í hús fyrir tilviljun eða af öðrum ástæðum sem gætu eiginlega verið hverjar sem er. Mér fannst í raun engin ástæða til að spá meira í þetta og lét kyrrt liggja,“ segir Sævar og bætir við:

„Kassarnir voru svo teknir úr kjallaranum þegar starfsemi útibúsins var flutt milli húsa hér á Ísafirði fyrir nokkrum árum. Svo var það núna um daginn – rétt eftir páskana – að starfsfólk hér var að handleika lausamuni á borðum. Þá lét einhver sér detta í hug að rétt og gaman væri að láta líta á höfuðkúpuna og fá söguna. Því var haft samband við Náttúrustofu Vestfjarðar og fornleifafræðinginn sem starfar þar. Frá komu hans og framhaldinu segir í fréttum að málið er í raun komið úr höndum okkar hér í bankanum.“

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson