Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir að sameining Íslandsbanka og Kviku gæti skapað öflugan nýjan banka. Þetta segir hann í ítarlegu viðtali við ViðskiptaMoggann. Hann kveðst ekki líta á það sem svo að ólík vinnustaðamenning innan bankanna sé hindrun

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir að sameining Íslandsbanka og Kviku gæti skapað öflugan nýjan banka. Þetta segir hann í ítarlegu viðtali við ViðskiptaMoggann. Hann kveðst ekki líta á það sem svo að ólík vinnustaðamenning innan bankanna sé hindrun. Jón Guðni segir að mikil sóknarfæri felist í slíkri sameiningu. Íslandsbanki sé með sterka stöðu meðal almennra viðskiptavina og lægri fjármögnunarkostnað, á meðan Kvika hafi byggt upp öfluga starfsemi í fjártækni og eignastýringu, bæði innanlands og erlendis, meðal annars í Bretlandi.

Bankarnir voru í sameiningarviðræðum 2023 en þeim var slitið. „Það hafði ekkert með áhugaleysi að gera, fólk sá strax mikil tækifæri,“ segir hann. Nú þegar Arion hefur einnig lagt fram formlegt tilboð á hendur Kviku segist Jón Guðni telja brýnt að bregðast hratt við.

Spurður hvers vegna Kvika ætti frekar að velja Íslandsbanka segir hann að sameiningin falli betur að menningu og framtíðarsýn beggja aðila. „Við teljum okkur passa betur saman og styrkleikar okkar fara betur saman,“ segir Jón Guðni.

Höf.: Magdalena Anna Torfadóttir