Í Fossvoginum Stuðningsmenn Víkings í stúkunni á góðri stundu.
Í Fossvoginum Stuðningsmenn Víkings í stúkunni á góðri stundu. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins leggur til að Reykjavíkurborg standi við fyrirheit gagnvart Knattspyrnufélaginu Víkingi og aðstöðu félagsins í Fossvoginum. „Borgarstjórn felur borgarstjóra að gera viðeigandi ráðstafanir í því skyni…

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins leggur til að Reykjavíkurborg standi við fyrirheit gagnvart Knattspyrnufélaginu Víkingi og aðstöðu félagsins í Fossvoginum.

„Borgarstjórn felur borgarstjóra að gera viðeigandi ráðstafanir í því skyni að Reykjavíkurborg standi við fyrirheit sín um stækkun athafnasvæðis Knattspyrnufélagsins Víkings í Stjörnugróf í samræmi við samþykkt borgarráðs 10. júlí 2008,“ segir meðal annars í tillögunni, en málið snýr einnig að gróðrarstöðinni Mörk við Stjörnugróf.

Harðorð bréf

„Jafnframt verði kannaðir möguleikar á nýrri staðsetningu gróðrarstöðvar að Stjörnugróf 18 en lóðarleigusamningur vegna hennar rann út í árslok 2016. Knattspyrnufélagið Víkingur er hverfisíþróttafélag, sem gegnir mikilvægu hlutverki í þágu íþrótta- og æskulýðsmála í Bústaðahverfi, Fossvogi, Háaleiti og Smáíbúðahverfi,“ segir í tillögunni, sem kemur í kjölfar bréfs sem forráðamenn Víkings rituðu borgaryfirvöldum í maí.

Í bréfinu segir að Reykjavíkurborg hafi ítrekað vanefnt áðurnefnd fyrirheit, sem hafi haft verulegar afleiðingar við uppbyggingu félagssvæðis Víkings. Björn Einarsson, formaður aðalstjórnar, og Haukur Hinriksson, framkvæmdastjóri félagsins, skrifuðu undir erindið. Þeir benda á að félagsmenn í Víkingi verði seint sakaðir um óþolinmæði í málinu.

Hóta aðgerðum

„Knattspyrnufélagið gerir einnig þá kröfu að Reykjavíkurborg veiti félaginu skýr og afdráttarlaus svör um ferli samningaviðræðna við félagið eigi síðar en 30. maí. Verði Reykjavíkurborg ekki við kröfum félagsins um áðurnefnd fyrirheit mun félagið að leita réttar síns gagnvart Reykjavíkurborg með öllum tiltækum úrræðum með lögfræðingum félagsins,“ segir jafnframt í bréfinu.

Málið hefur ekki verið í farvegi hjá borginni í langan tíma, eins og sjá má á erindi Víkinga. Ekki var deilt að ráði um málið árið 2008. Stærð athafnasvæðis Víkings er um 53 þúsund fermetrar, þar af um 10 þúsund í landi Kópavogs. Gróðrarstöðin Mörk er rekin á lóð sem liggur að athafnasvæði Víkings. Stærð lóðarinnar er 19.415 fermetrar en auk þess nýtir gróðrarstöðin aðlæga spildu í landi Kópavogs.

Höf.: Kristján Jónsson