Búð Gamlir verslunarhættir rifjast upp þegar hverfisskipulag er rýnt.
Búð Gamlir verslunarhættir rifjast upp þegar hverfisskipulag er rýnt. — Morgunblaðið/Ernir
Í svæðisskipulagi Breiðholts þar sem heimilt er að byggja ofan á fjölbýlishús á bílastæðum fjölbýlishúsa og á bílastæðum við FB og Breiðholtslaug er heimilt að stunda atvinnustarfsemi innan íbúða. Í svari Reykjavíkurborgar vegna fyrirspurnar…

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Í svæðisskipulagi Breiðholts þar sem heimilt er að byggja ofan á fjölbýlishús á bílastæðum fjölbýlishúsa og á bílastæðum við FB og Breiðholtslaug er heimilt að stunda atvinnustarfsemi innan íbúða. Í svari Reykjavíkurborgar vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins kemur fram að það sé vel þekkt að fólk stundi létta og umfangslitla atvinnustarfsemi heiman frá sér.

„Í aðalskipulagi eru veittar nokkuð almennar heimildir fyrir starfsemi innan íbúðarbyggðar en kveðið á um að hægt sé að setja nánari ákvæði í hverfis- og/eða deiliskipulagi. Með skilmálum og leiðbeiningum hverfisskipulags um starfsemi í íbúðabyggð er fyrst og fremst verið að reyna að setja skýrari ramma um hvers konar starfsemi er heimiluð innan íbúðarbyggðar og hver ekki. Fjölbreytt atvinnustarfsemi í hverfum borgarinnar, sem fellur vel að íbúðarbyggð, getur haft ýmiskonar jákvæð áhrif.“

Í svarinu er vísað til leiðbeininga í Hverfisskipulagi Reykjavíkur sem unnið var 2018 og 2019. Þar kemur fram að heimilt sé að reka smásöluverslun, snyrti- og hárgreiðslustofu, dýrasnyrtistofu, sálfræðiþjónustu, daggæslu, bókunarþjónustu fyrir ferðamenn, endurskoðunarskrifstofu, gististarfsemi og arkitektastofu í íbúðum. Ef starfsemin er í íbúðarhúsnæði skal hún fara fram á almennum vinnutíma og skulu ekki starfa fleiri en þrír starfsmenn innan hverrar íbúðar. Umfang starfseminnar má ekki vera íþyngjandi fyrir meðlóðarhafa eða aðliggjandi lóðarhafa. Mismunandi er hvort starfsemin er leyfisskyld eða ekki.

Í leiðbeiningarrritinu er tekið er fram að ekki sé heimilt að reka bifreiðaverkstæði, fatahreinsun, sendibílaþjónustu og ökutækjaleigu innan íbúða.

Höf.: Óskar Bergsson