Flest benti til þess í gær að Lee Jae-myung, frambjóðandi Demókrataflokksins í Suður-Kóreu, yrði kjörinn næsti forseti landsins, en útgönguspár bentu til þess að hann hefði hlotið um 51,7% atkvæða. Á sama tíma mældist helsti keppinautur hans um embættið, Kim Moon-soo, frambjóðandi íhaldsflokksins PPP, með um 39,3% í sömu spám. Þátttaka í kosningunum mældist um 80% og var hún sú mesta í forsetakosningum í Suður-Kóreu í tæpa þrjá áratugi.
Niðurstaða útgönguspánna var í samræmi við helstu skoðanakannanir í Suður-Kóreu undanfarnar vikur, en boðað var til forsetakosninganna eftir að Yoon Suk-yeol, fyrrverandi forseta landsins, var vikið úr embætti vegna misheppnaðrar tilraunar sinnar í desember til þess að koma á herlögum.
Þeir stjórnmálaskýrendur sem AFP-fréttastofan ræddi við í gær sögðu að kosningin hefði að miklu leyti orðið að þjóðaratkvæðagreiðslu um álit þeirra á Yoon og herlögunum. Sæist það ekki síst á því að Lee væri sjálfur mjög umdeildur stjórnmálamaður, en hann tapaði forsetakosningum gegn Yoon árið 2022 vegna ýmissa spillingarmála sem loddu við hann. Þau hefðu hins vegar ekki skipt kjósendur sama máli núna í kjölfar herlaganna.
Vladimir Tikhonov, prófessor í kóreskum fræðum við Óslóarháskóla, sagði við AFP að svo virtist sem Demókrataflokkurinn, sem er jafnaðarmannaflokkur, hefði náð að höfða til einstaklinga á fertugs- og fimmtugsaldri, sem jafnan væru taldir hóflega íhaldssamir. „Valdaránstilraun Yoons hræddi þetta fólk, og það mun ekki að sinni kjósa PPP aftur,“ sagði Tikhonov.