Landfari, umboðsaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi, heldur opnunarhátíð að Álfhellu 15 í Hafnarfirði nk. laugardag kl. 11-15. Þar gefst almenningi kostur á að skoða nýtt þjónustuverkstæði og nýjustu atvinnubílana frá Mercedes-Benz og Setra, þar á meðal verður frumsýndur rafmagnsknúinn vörubíll af gerðinni eActros 600.
Um er að ræða nokkur tímamót fyrir Landfara, en í tilkynningu um viðburðinn segir m.a. að með opnun nýs verkstæðis sé verið að efla þjónustu við atvinnubílaeigendur. Verkstæðið sé útbúið til að mæta kröfum nútímans, bæði fyrir hefðbundna dísilbíla og rafmagnsbíla.
„Við erum sérstaklega spennt að kynna eActros 600, öflugasta fjöldaframleidda rafmagnsvörubílinn í heiminum í dag,“ er haft eftir Eiríki Þór Eiríkssyni, framkvæmdastjóra Landfara, í tilkynningunni.
Á nýja verkstæðinu að Álfhellu 15 verður boðið upp á smurþjónustu fyrir allar gerðir atvinnubíla, viðgerðir, rúðuviðgerðir og rúðuskipti, viðgerðir og þjónustu við eftirvagna og bilanagreiningar og viðhald fyrir vöru- og hópferðabíla frá Mercedes-Benz og Setra.
Landfari rekur nú þjónustuverkstæði á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Auk Álfhellu er þjónustuverkstæði og söludeild að Desjamýri 10 í Mosfellsbæ og vagnaverkstæði í Klettagörðum 4, sem mun flytja í Klettagarða 5 á næstu vikum.