Íslenski dansflokkurinn heldur brátt til Noregs þar sem flokkurinn sýnir verkið Ball eftir þau Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Roberts á True Northern Art Festival 28. júní
Íslenski dansflokkurinn heldur brátt til Noregs þar sem flokkurinn sýnir verkið Ball eftir þau Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Roberts á True Northern Art Festival 28. júní. Í tilkynningu segir að á Balli komi saman atvinnu- og áhugadansarar en verkið verður endurskapað með áhugadönsurum frá staðnum. Þann 5. og 6. júlí tekur flokkurinn þátt í danshátíðinni Julidans í Amsterdam og sýnir Rómeó og Júlíu í nærmynd eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur.