Jón Þór Dagbjartsson hlaut í gær sex ára dóm fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu sína og barnsmóður í Vopnafjarðarmálinu svokallaða. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands í gær.
Dómurinn hefur ekki verið birtur en Austurfrétt greinir frá dómsuppkvaðningunni.
Í málinu var Jón Þór sakaður um tilraun til manndráps með því að hafa ráðist á konuna aðeins nokkrum klukkustundum eftir að henni hafði verið hafnað um nálgunarbann á Jón. Hafdís Bára Óskarsdóttir, brotaþolinn, steig fram í Kastljósi RÚV á sínum tíma þar sem hún sagði manninn hafa ráðist á sig inni í skemmu fyrir utan heimili hennar.
Var Jóni gefið að sök að hafa meðal annars veist að Hafdísi með rúllubaggateini og notað hann til að reyna að stinga hana í kviðinn, ýta við henni þar til hún féll til jarðar og síðan notað teininn til að þrengja að hálsi hennar.
Auk sex ára dóms er Jóni Þór gert að greiða Hafdísi 3,1 milljón í miskabætur og sakarkostnað upp á 15 milljónir. Þá voru gerð upptæk skotvopn sem fundust á heimili hans, en hann hafði einnig verið ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa ekki skráð eða geymt vopnin á réttan hátt. Samtals var um fjórtán byssur að ræða og skotfæri.
Saksóknari í Vopnafjarðarmálinu hafði upphaflega farið fram á 7-8 ára fangelsi, eins og kom fram í málflutningi saksóknara við aðalmeðferð málsins í síðasta mánuði.
Jón hafði borið fyrir sig minnisleysi og geðrof í þeim hluta málsins sem tekur til tilraunar til manndráps. Þá hafði hann einnig hafnað ásökunum um brot í nánu sambandi.