Sjöfn Þórðardóttir
sjofn@mbl.is
Jakob er eigandi Jómfrúarinnar og Benni er búinn að vinna þar í mörg ár samhliða því að vera á fullu í tónlist og hljómsveitarrekstri en hann er trommuleikari sveitarinnar Une Misére auk þess að spila með fjölda listamanna, til að mynda með Emmsjé Gauta.
„Núna ætlum við að taka slaginn saman í Hveragerði, sem á alla vegu er mest blómstrandi bær landsins,“ segir Jakob fullur tilhlökkunar fyrir komandi tímum.
Jakob hefur tekið við Jómfrúinni af pöbbunum sínum og segir að í raun megi segja að Jómfrúin sé tekin við Matkránni. Hann hefur farið í ákveðnar breytingar bæði hvað varðar áherslur í matargerðinni og afgreiðslutíma staðarins en Matkráin var lokuð mánudaga og þriðjudaga en er nú opin alla daga frá klukkan 11:30 til 21:00.
Aðspurður segir hann nauðsynlegt að eiga gott teymi þegar staðið er í veitingarekstri sem þessum og ekki síst þegar farið er út í breytingar.
Bræðurnir stýra rekstrinum
„Ég er svo heppinn að eiga tvo bræður sem gott og gaman er að vinna með þannig að annar þeirra er yfirmaður á Jómfrúnni, hann
Óli, en Benni ákvað að taka stökkið yfir heiðina og taka að sér að vera yfir daglegum rekstri hér í Hveragerði.
Við reynum svo, eins og öll fyrirtæki, að hagræða í rekstri bæði í innkaupum og yfirbyggingu, til dæmis með því að yfirkokkurinn okkar á Jómfrúnni, Ómar Valur, hefur líka Matkrána undir sínum verndarvæng,“ segir Jakob alvörugefinn. Vert er að geta þess að það er líka boðið upp á gistingu fyrir ofan Matkrána, sem nýtur mikilla vinsælda og passar vel inn í konseptið í Hveragerði.
Föttuðu að þeir væru of ungir til að hætta
Matkráin mun fagna sex ára afmæli í sumar. „Pabbarnir mínir, Jakob og Guðmundur, höfðu lengi haft augastað á þessu húsnæði, Breiðumörk 10, og þegar þeir föttuðu að þeir voru of ungir til að setjast í helgan stein eftir að hafa selt Jómfrúna árið 2015, þá fóru þeir af stað með þennan rekstur árið 2019.
Auðvitað hefur ekki bara verið blár himinn og sólskin síðan Matkráin var opnuð, strax fyrstu árin eftir opnun geisaði alheimsfaraldurinn með tilheyrandi áskorunum. En það sem við höfum í höndunum er gríðarlega fallegur staður, í skemmtilegum bæ sem er í alfaraleið. Í landi sem er blessunarlega frekar fullt af ferðamönnum, sem býr til stoðina undir rekstur sem þennan.
Við erum svo heppnir að búa yfir góðu og mjög dugmiklu starfsfólki. Við látum ekki skeika að sköpuðu heldur ætlum að búa til alvöru sjálfbæran rekstur,“ segir Jakob með gleðina að vopni.
Bræðurnir ákváðu að gera breytingar á matseðlinum og höfða til stærri hóps með fjölbreyttari matseðli.
„Við fórum strax í nokkurs konar áferðarbreytingu á matnum og drykkjunum líka, að einhverju leyti strax síðasta sumar, í aðdraganda þess að Jómfrúin keypti staðinn. Við vildum aðeins víkka út konseptið, ná að höfða betur til breiðari hóps enda erum við á þannig svæði, í minni bæ heldur en Reykjavík þar sem fólksfjöldinn er slíkur að sérhæfingin getur trompað annað. Hér í Hveragerði er líka meira hlutfallslega af ferðamönnum sem heimsækja okkur heldur en á Jómfrúnni.“
Bjóða upp á fulla þjónustu á íslensku
Smurbrauðið er í forgrunni á matseðlinum líkt og á Jómfrúnni en áherslurnar eru öðruvísi.
„Það er skýr tenging í formi smurbrauðs sem á drjúgan sess á seðlinum en annars erum við mun minna niðurnjörvaðir af dönskum hefðum og venjum á Matkránni. Ég hef sagt við fólk að þetta sé eins konar seðill þar sem Jómfrúin hittir gamla góða Snaps bistro-inn. Við erum líka með flottar samlokur, eina til tvær súpur, lambakótelettur, kálfasnitsel, geitaostasalat, tvær gerðir hamborgara og fleira gómsætt. Matargerðin er bistróréttir með mjög danskri taug sem er okkar sérstaða,“ bætir Benni við.
„Við viljum bjóða mat sem að sjálfsögðu mætir væntingum viðskiptavinanna en það er þjónustan sem segja má að eigi að vera okkar samkeppnisforskot. Þjónusta er almennt á útleið á veitingastöðum sem eru ekki í efsta verðflokki, en við viljum reyna að varðveita hana og líkt og á Jómfrúnni bjóða fulla þjónustu til borðs og meira að segja á íslensku,“ segir Jakob enn fremur.
Höfuðborgarbúar eiga sennilega vinninginn
Aðspurður segir Benni að mikið sé um að höfuðborgarbúar heimsæki staðinn. „Það er hærra hlutfall ferðamanna á Matkránni en á Jómfrúnni, þó svo að Jómfrúin sé á fjölfarnasta ferðamannastað Íslands, miðborg Reykjavíkur. Íbúar Hveragerðis eru drjúgir, þeir mega alveg eiga það og við erum þakklátir.
En vinninginn eiga sennilega höfuðborgarbúar á leið í bústaðina sína hérna fyrir sunnan okkur. Svo eru golfarar stór kúnnahópur.“
Bræðurnir segja að það gangi ágætlega að reka stað í Hveragerði og eru sannfærðir um að það sé hægt að gera enn betur.
„Síðasta ár var ágætt og við teljum að þetta ár geti orðið betra. Við erum mjög spenntir fyrir áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu hér í kring, sérstaklega þar sem fyrirhugð er uppbygging ferðaþjónustu í Reykjadal. Matkráin er auðvitað segull í sjálfu sér fyrir marga en er líka frábær stoð við aðra uppbyggingu. Fólk hefur sagt við okkur að við séum ein af ástæðum þess að það þorði sjálft að fara af stað í uppbyggingu hér á svæðinu. Það finnst okkur gaman að heyra,“ segir Jakob með bros á vör.
Farinn að skoða fasteignir
Þessa dagana eru bræðurnir að upplifa hversu heillandi það er að vera í litlu samfélagi, bæjarfélagi þar sem allt er til alls.
„Benni er það hrifinn af bænum og lífsgæðunum hér að hann er farinn að skoða fasteignir ásamt unnustu sinni og þriggja ára syni. Við keyrum tvo veitingastaði, eitt sérleyfi sem er Jómfrúin Leifsstöð, gistinguna í Matkránni „apartments“ sem og tilheyrandi fasteignir áfram á yfirbyggingu sem telur sirka eitt stöðugildi.
Það er nokkuð sem ég fíla rosalega vel og er það sem þarf til að vera réttum megin í rekstri sem þessum í dag. Vissulega er það smá atgangur en það að ná að kjarna sig reglulega á Hellisheiðinni með gott hlaðvarp á fóninum er nákvæmlega það sem ég þarf,“ segir Jakob að lokum.