Reykjavík Ekki er verið að nýta tómar íbúðir í leigu Vinnumálastofnunar.
Reykjavík Ekki er verið að nýta tómar íbúðir í leigu Vinnumálastofnunar. — Morgunblaðið/Golli
Fjöldi eigna sem Vinnumálastofnun tók á leigu fyrir fólk sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi stendur auður. Í svari Ingu Sæland, félags- og húsnæðisráðherra, við fyrirspurn Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins um þetta mál…

Fjöldi eigna sem Vinnumálastofnun tók á leigu fyrir fólk sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi stendur auður.

Í svari Ingu Sæland, félags- og húsnæðisráðherra, við fyrirspurn Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins um þetta mál kemur fram að Vinnumálastofnun hefur 37 eignir og 93 hótelherbergi á leigu fyrir umsækjendur. Vilhjálmur bendir á hve stór hluti þessara eigna sé í Reykjanesbæ. Hann furðar sig einnig á því að engin svör hafi borist um lengd leigusamninganna.

Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir samningana óuppsegjanlega og að ekki standi til að nýta þær eignir sem nú standi tómar. Vilhjálmur segir þetta skaðlegt fyrir nærumhverfi eignanna auk þess sem verið sé að fara illa með almannafé skattgreiðenda. » 40