Samtal Halla Tómasdóttir forseti Íslands í pallborði með japönskum þingkonum á jafnréttisþinginu.
Samtal Halla Tómasdóttir forseti Íslands í pallborði með japönskum þingkonum á jafnréttisþinginu. — Morgunblaðið/Baldur
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Halla Tómasdóttir forseti Íslands var aðalgestur á málþingi um jafnréttismál sem haldið var í Tsuda-háskóla í Sendagaya í Tókýó síðastliðinn laugardag. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur tók þátt í síðari hluta málþingsins, sagði frá…

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Halla Tómasdóttir forseti Íslands var aðalgestur á málþingi um jafnréttismál sem haldið var í Tsuda-háskóla í Sendagaya í Tókýó síðastliðinn laugardag. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur tók þátt í síðari hluta málþingsins, sagði frá stefnu borgarinnar í þessum málaflokki og svaraði spurningum.

Tsuda-háskóli er einkaskóli fyrir konur og er nefndur eftir Tsuda Umeko, sem var brautryðjandi í menntun kvenna í Japan. Vakning er í jafnréttismálum í Japan og Tsuda til heiðurs var gefinn út peningaseðill með mynd af henni í fyrra.

Heimsókn Höllu hófst með því að hún heilsaði upp á stúlkur í skólanum en það sýndi sig í opinberri heimsókn hennar til Japans að hún á auðvelt með að tengjast fólki.

Samtal við þingkonur

Síðan var haldið í fyrirlestrasal og hófst málþingið með því að Halla ávarpaði gesti. Síðan átti hún samtal við japönsku þingkonurnar Karen Makishima, Harumi Yoshida, Mitsuko Ishii, Takae Ito, Yoriko Madoka, Yoshiko Kira, Mari Kushibuchi og Mizuho Fukushima, en segja má að þær spanni hið pólitíska litróf.

Eftir hlé ræddu þær Halla og Heiða Björg við ungt fólk um jafnréttismálin. Með þeim voru þrjár ungar konur í skólanum; Mao Nagafuchi, Moe Yamauchi og Maho Ueno, ásamt Yuki Murohashi sem var fulltrúi samtaka ungs fólks í Japan (e. Japan Youth Conference). Meiko Kawanishi, fréttamaður hjá Nagoya News Bureau, stýrði umræðum en við þetta tækifæri sagði Heiða Björg frá stefnu Reykjavíkurborgar í jafnréttismálum.

Myndskeið íslenskra fulltrúa

Jafnréttisþingið hófst klukkan 10 og stóð yfir til hádegis. Áður en það hófst var myndskeið íslensku ungmennafulltrúanna á Heimssýningunni í Osaka sýnt en það var frumsýnt í skála Sameinuðu þjóðanna á sýningunni á þjóðardegi Íslands 29. maí.

Konur voru í miklum meirihluta meðal gesta á jafnréttisþinginu og var greinilegt að málflutningur Höllu og Heiðu Bjargar höfðaði til þeirra. Mikið hallar á konur í japönsku skólakerfi. Þannig upplýsti einn fundargesta í samtali við blaðamann að konur stýrðu aðeins fáeinum af um 700 háskólum í Japan. Nánar er sagt frá þinginu á mbl.is í dag.

Höf.: Baldur Arnarson