Hrafnagilshverfi Skólabyggingar, sundlaug og byggð íbúðarhúsa í fallega grónu sveitaþorpinu.
Hrafnagilshverfi Skólabyggingar, sundlaug og byggð íbúðarhúsa í fallega grónu sveitaþorpinu. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mikil uppbygging á sér nú stað í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit sem er um 10 kílómetra fyrir sunnan Akureyri. Þar eru nú í byggingu alls 16 íbúðarhús og svipuðum fjölda lóða hefur verið úthlutað, þar sem vænta má að framkvæmdir hefjist síðar á þessu ári eða því næsta

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Mikil uppbygging á sér nú stað í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit sem er um 10 kílómetra fyrir sunnan Akureyri. Þar eru nú í byggingu alls 16 íbúðarhús og svipuðum fjölda lóða hefur verið úthlutað, þar sem vænta má að framkvæmdir hefjist síðar á þessu ári eða því næsta. „Hverfið er eftirsótt til búsetu og fólkið sem hingað flytur myndar fjölbreyttan hóp,“ segir Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri.

Íbúar í Eyjafjarðarsveit, það er í dalnum sunnan Akureyrar sem þar nær langt inn til landsins, eru nú 1.217. Þarna eru mörg góð býli og fjölbreyttur landbúnaður. Svo má segja að Hrafnagilshverfi sé miðlægur staður svæðisins. Þar er skrifstofa sveitarstjórnar, skólar, íþróttamannvirki og fleira. Einnig Jólagarðurinn; vinsæll viðkomustaður ferðafólks. Íbúar í hverfinu eru nú um 370.

Stækka og styrkja skólana

Nokkur fjöldi íbúðarhúsa hefur verið í hverfinu við Hrafnagil, en farið var að færa út kvíarnar fyrir nokkrum árum. Þar munar verulega um að nú hefur þjóðvegurinn um sveitina verið færður út úr hverfinu og liggur nú austan þess. „Þetta eykur öryggi og skapar nýja möguleika,“ segir Finnur sveitarstjóri. Í gegnum hverfið liggur gatan Hrafnatröð og þar er verið að byggja nokkur hús svo og við Hólmatröð sem er sunnar. Helstu stofnanir sveitarfélagsins eru í Hrafnagilshverfi og nú er verið að stækka skólahúsið. Þar er reist álma fyrir leikskólann Krummakot þar sem verður pláss fyrir 110 börn hið minnsta.

„Núverandi húsakostur leikskólans hentaði ekki og því er reist nýtt hús. Leikskólabörn í dag eru 70-80 en við vildum horfa lengra fram í tímann og getum því, með tilliti til húsnæðis, tekið á móti talsvert fleiri börnum í húsinu sem tekið verður í notkun í haust. Þá er í undirbúningi að bæta aðstöðu grunnskólans, þar sem eru 180 nemendur. Styrkur sveitarfélagsins sést m.a. á því að verið sé að stækka og styrkja skóla. Börnin eru framtíðin,“ segir Finnur. – Nýir íbúar í Hrafnagilshverfi eru að sögn sveitarstjórans gjarnan ungt fjölskyldufólk sem sækir vinnu út í frá. Einnig í nokkrum mæli fólk komið yfir miðjan aldur sem vill fara að hægja á sér og finnst þá kjörið að búa í þessu litla friðsæla sveitaþorpi.

„Íbúaþróun hér fylgir lóðaframboði sem nú er verið að auka, meðal annars með Ölduhverfi sem verður hér í brekkunum fyrir ofan hverfið. Þar er nú verið að brjóta land og leggja götur, en á svæðinu verða alls 212 íbúðir sem gæti þýtt 400-700 íbúar. Þetta er áhugaverð þróun. Nei, hér er engin verslun. Ef fólk vantar eitthvað er stutt inn á Akureyri og svo eru íbúarnir líka í samskiptum á Facebook og miðla sín á milli vanti eitthvað,“ segir Finnur Yngvi.

Fjöldi húsa reistur í Reynihlíð

Þróun svipuð því sem nú gerist við Hrafnagil á sér nú stað á Lónsbakka í Hörgársveit, rétt norðan við Akureyri. Þar var fyrir vísir að þéttbýli en með breyttu skipulagi og framkvæmdum hefur svæðið eflst mikið á síðustu árum. Fjöldi sérbýliseigna, rað- og parhús, hefur verið reistur við götuna Reynihlíð á síðustu árum og er byggðin nú að öðlast heildstæðan svip. Uppbygging þarna heldur áfram; og búið er að deiliskipuleggja lóðir fyrir þrjú fjölbýlishús með samtals 32-34 íbúðum. Einnig reit fyrir tvö einbýlishús. Sömuleiðis er þar sem heitir Lónsvegur gert ráð fyrir þriggja hæða húsi fyrir verslun, þjónustu og atvinnustarfsemi.

Þessu tengt er á hringveginum við Lónsbakka verið að útbúa hringtorg, rétt áður en komið er inn til Akureyrar úr norðri.

Íbúar í Lónsbakkahverfinu eru nú liðlega 300, að því er fram kemur í tölum Hagstofu. Alls búa 886 manns í Hörgársveit allri; en hún nær yfir Kræklingahlíð, Hörgárdal, Öxnadal og svo svæðið þar til norðurs að Fagraskógi. Á þeim slóðum er til að mynda Hjalteyri. Miðlægur staður í sveitarfélaginu er á Þelamörk í mynni Hörgárdals, nærri Moldhaugnahálsi. Þar eru m.a. sveitarstjórnarskrifstofa, grunnskóli, íþróttahús og sundlaug.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson