Varnarmálaráðuneyti Taílands hefur ákveðið að kaupa fjórar nýjar orrustuþotur af sænska framleiðandanum Saab, en vélarnar eru af gerðinni Gripen. Með þessu var fallið frá fyrri áformum hersins að kaupa hina bandarísku F-16-orrustuþotu. Stjórnmálaskýrendur hafa áhyggjur af því að ákvörðunin muni fara fyrir brjóstið á stjórnvöldum í Bandaríkjunum og mögulega hindra samningaviðræður við ríkisstjórn Donalds Trumps um tollagjöld.
Þoturnar fjórar eru hluti af stærri endurnýjun flugflotans, en á næstu tíu árum verða keyptar alls 12 nýjar orrustuþotur. Fyrir eru í herþjónustu Taílands 11 eldri Gripen-þotur og nokkrir tugir af F-16. Bæði þessi vopnakerfi eru sögð afar fjölhæf og talin áreiðanlegir vinnuhestar.