Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina varla geta staðið með áformunum.
Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina varla geta staðið með áformunum. — Morgunblaðið/Karítas
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að væntanleg launahækkun æðstu embættismanna íslenska ríkisins um 5,6 prósent geti grafið undan sátt á vinnumarkaði. „Ég vek athygli á því að ríkisstjórn sem hefur lýst því yfir að…

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að væntanleg launahækkun æðstu embættismanna íslenska ríkisins um 5,6 prósent geti grafið undan sátt á vinnumarkaði.

„Ég vek athygli á því að ríkisstjórn sem hefur lýst því yfir að hún ætli að ráðast á verðbólguna – meira að segja með vaxtasleggju – getur varla staðið með því að æðstu embættismenn hækki í launum núna umfram það sem samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði,“ segir Guðrún í samtali við Morgunblaðið.

Laun almenns launafólks hækkuðu til samanburðar um 3,5% eftir gerð síðustu kjarasamninga.

„Það hlýtur að skjóta skökku við ef æðstu embættismenn þjóðarinnar ætla að fara að taka meiri launahækkanir en aðrir,“ segir Guðrún.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að honum finnist að laun ráðamanna ættu að fylgja launahækkunum á almennum vinnumarkaði.

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að það sé grundvöllur til að skapa sátt um þetta fyrirkomulag – að tenging sé þarna á milli,“ segir Kristján Þórður og játar því að miklu muni á hækkunum embættismanna og almennings. atlisteinn@mbl.is