Réttlæti Saksóknarar héldu blaðamannafund í tengslum við málið.
Réttlæti Saksóknarar héldu blaðamannafund í tengslum við málið. — AFP/Jonas Ekstromer
Réttarhöld eru hafin í Stokkhólmi í Svíþjóð yfir herskáum íslamista sem sagður er hafa tekið þátt í aftöku orrustuflugmanns frá Jórdaníu árið 2014. Ódæðismaðurinn heitir Osama Krayem, 32 ára gamall, og afplánar hann nú þegar dóm sem hann fékk fyrir…

Réttarhöld eru hafin í Stokkhólmi í Svíþjóð yfir herskáum íslamista sem sagður er hafa tekið þátt í aftöku orrustuflugmanns frá Jórdaníu árið 2014. Ódæðismaðurinn heitir Osama Krayem, 32 ára gamall, og afplánar hann nú þegar dóm sem hann fékk fyrir þátttöku í hryðjuverkum sem framin voru í París og Brussel árin 2015 og 2016. Yfir 160 manns létust í árásunum tveimur og mikill fjöldi særðist, sumir þeirra varanlega.

Á aðfangadag árið 2014 brotlenti herþota Jórdaníu í Sýrlandi og var flugmaður hennar handtekinn af vígamönnum Ríkis íslams. Farið var með hann að borginni Raqqa þar sem maðurinn var neyddur til að klæðast appelsínugulum fangagalla áður en honum var komið fyrir inni í járnbúri. Allt í kringum búrið stóðu íslamistar Ríkis íslams fagnandi en atburðurinn var tekinn upp á myndband. Skömmu síðar var eldur lagður að búrinu og flugmaðurinn brenndur lifandi. Myndefninu var svo dreift á samfélagsmiðlum og var þetta eitt af fyrstu myndböndum Ríkis íslams sem sýna aftöku til að fara í almenna dreifingu.

Fram kemur í ákæru saksóknara í Svíþjóð að Krayem hafi þennan dag verið í hlutverki varðar og féll það í hans verkahring að leiða flugmanninn inn í járnbúrið. Félagar Karayems hafi svo lagt eld að bensíni sem hellt hafði verið við og undir búrið. Krayem sést þó ítrekað á myndskeiðinu umrædda þar sem hann annaðhvort fylgist með atburðarásinni eða tekur þátt í henni sjálfur með beinum hætti.

Sér ekki eftir neinu

Ekki var að sjá á Krayem neina iðrun þegar ákærur voru lesnar upp. Hann sat rólegur í réttarsalnum og sýndi fá ef nokkur svipbrigði. Réttarhöldin munu standa út júní.