Egill Aaron Ægisson
egillaaron@mbl.is
Franska herskipið Mistral liggur nú við höfnina í Korngörðum í Reykjavík, en það tekur þátt í fimm mánaða hernaðarverkefni sem kennt er við Jóhönnu af Örk. Skipið er tæplega 200 metrar að lengd, 25.000 tonn að þyngd.
Með skipinu í för er herskipið Surcouf og rúma skipin um 800 hermenn, þar af 640 sjóliða og 150 landhermenn.
Markmið verkefnisins er að styrkja viðveru Frakklands á lykilsvæðum og samskipti við NATO-ríki sem og að veita ungum sjóliðum hagnýta þjálfun í alþjóðlegu samhengi.
Verkefnið hófst í febrúar og lýkur í júlí. Áhöfnin hefur siglt um Atlantshafið með viðkomu meðal annars á Fílabeinsströndinni, í Brasilíu, Kólumbíu, Bandaríkjunum, Kanada og nú Íslandi. Að dvölinni lokinni verður haldið til Noregs, en heimsókn hér lýkur 9. júní.
Í samtali við Morgunblaðið segir skipstjórinn Quentin Vieux-Rochas að ferðin bjóði upp á raunhæfa þjálfun þar sem ungu sjóliðarnir læri að aðlagast aðstæðum fjarri heimalandi og fjölskyldu.
Hann bendir á að langtímadvöl á hafi úti geti reynst krefjandi – einkum þar sem samskipti við aðstandendur séu takmörkuð. Hins vegar veiti slík reynsla mikilvægan þroska og innsýn í ólíka menningarheima.
Í viðbragðsstöðu við Líbanon
Mistral er svokallað þyrlumóðurskip sem getur flutt hermenn til lands með þyrlum og lendingarbátum, án þess að leggja að bryggju. Vieux-Rochas nefnir sem dæmi að í október hafi skipið verið í viðbragðsstöðu við strendur Líbanons til að flytja borgara er árásir áttu sér stað milli Líbanons og Ísraels.
Áhöfnin kom í höfnina í gærmorgun og eins og margir vita voru veðurskilyrði landsins þá krefjandi.
Segir Vieux-Rochas að mikill vindur og háar öldur, allt að 4-5 metrar á hæð, hafi herjað á skipið er það var vestan við strendur landsins í fyrradag. Ægir hafi sýnt tennur.
„Jafnvel svona stórt skip er ekki kyrrt í slíkum sjó,“ segir skipstjórinn en bætti jafnframt við að veðrið væri hluti af lærdómnum.