Vopnafjörður Nikulás Árnason hér með flugstöðina og farkost í baksýn. Twin Otter tekur 19 farþega og þykir afar traust og góð flugvél.
Vopnafjörður Nikulás Árnason hér með flugstöðina og farkost í baksýn. Twin Otter tekur 19 farþega og þykir afar traust og góð flugvél. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Að sjá vélina frá Akureyri koma hér fram Hofsárdalinn með stefnu beint inn á braut vekur alltaf góða tilfinningu,“ segir Nikulás Árnason, flugvallarvörður á Vopnafirði. Þar í sveit er flugið afar mikilvæg samgönguæð, enda er langt í næstu byggðir

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Að sjá vélina frá Akureyri koma hér fram Hofsárdalinn með stefnu beint inn á braut vekur alltaf góða tilfinningu,“ segir Nikulás Árnason, flugvallarvörður á Vopnafirði. Þar í sveit er flugið afar mikilvæg samgönguæð, enda er langt í næstu byggðir. Löng hefð er fyrir því að Vopnfirðingar sæki til dæmis verslun og þjónustu til Akureyrar fremur en í Egilsstaði. Forðum lá leiðin til og frá Vopnafirði á Hérað yfir fjallgarða á Möðrudalsöræfum sem oft gátu verið veruleg fyrirstaða. Sá vegur er fyrir löngu aftengdur, nú er farin Háreksstaðaleið en áfram helst þó að Akureyri er bakland Vopnafjarðar að svo mörgu leyti.

Þríhyrningur og traustur Twin Otter

Þriðjudagsmorgunn og klukkan er langt gengin í 10. Vormorgunn eins og þeir gerast allra bestir. Afgreiðslumaður stendur á planinu á Vopnafjarðarflugvelli og gefur flugmönnum Norlandair bendingar um hvar lagt skuli í stæði. Farkostur dagsins er Twin-Otter; traustbyggð vél sem tekur 19 farþega. Flugið frá Akureyri yfir fjöll og dali tók rúman hálftíma. Slæðingur af fólki er með í vélinni og svo talsvert af frakt: svo sem brauð úr Kristjánsbakaríi á Akureyri, nýsmurðar samlokur og Moggi dagsins. Ekki tekur langa stund að afgreiða vélina og á meðan fá flugmennirnir, Bjarni Helgason flugstjóri og Haukur Gunnarsson, sér hressingu.

Farþegar sem ætla með vélinni frá Vopnafirði áfram eru skráðir inn og eftir svo sem 20 mínútna stopp er haldið áfram til Þórshafnar sem er næsti áfangastaður. Þá er flogið til norðurs yfir Langanesströnd og Brekknaheiði. Gunnólfsvíkurfjall blasir við. Flugbrautin á Þórshöfn stendur skammt norðan við þorpið og þar eins og annars staðar eru margir mættir á völlinn þegar Akureyrarvélin kemur. Lífæð á landsbyggðinni mætti kalla þetta.

Áætlun samkvæmt flýgur Norlandair á norðausturhornið fimm daga vikunnar, það er þríhyrning frá Akureyri, til Vopnafjarðar, Þórshafnar og þaðan svo aftur í Eyjafjörðinn. Mánudag, þriðjudag og fimmtudag er flogið á morgnana en föstudag og sunnudag eru síðdegisferðir.

Sjúkraflug og laxveiðimenn

„Þá morgna sem hingað er flogið er ég mættur á völlinn fyrir allar aldir. Allt þarf að gera klárt og á veturna getur snjómokstur á flugbrautinni vissulega tekið sinn tíma. Þá þarf slökkvibíll líka að vera á vellinum þegar áætlunarvélin kemur. Reglurnar eru þannig. Já, í raun og veru er alltaf talsverð umferð hér á flugvellinum fyrir utan ferðir Norlandair. Stundum er hingað sjúkraflug og þær ferðir geta verið á öllum tímum og eru fyrirvaralausar eðli málsins samkvæmt. Í nokkrum mæli koma svo hingað yfir sumarið einkavélar í leiguflugi með laxveiðimenn. Hofsá og Selá eru vinsælar og veiðinni fylgja talsverð umsvif og uppbygging hér í Vopnafirði,“ segir Nikulás, flugvallarvörður til síðustu fjögurra ára.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson