Þorgerður Kristín Þráinsdóttir
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra ÁTVR til fimm ára frá 1. september. Hún tekur við starfinu af Ívari J. Arndal, sem gegndi því í 20 ár. Þorgerður var framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar frá 2014 en starfaði áður í…

Þorgerður
Kristín Þráinsdóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra ÁTVR til fimm ára frá 1. september. Hún tekur við starfinu af Ívari J. Arndal, sem gegndi því í 20 ár. Þorgerður var framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar frá 2014 en starfaði áður í áratug sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs og mannauðsstjóri Lyfju.

Þorgerður er með B.A.- og Cand.Psych.-gráðu í sálfræði.