Dagmál Sigríður Andersen telur ógerlegt að stjórnin klári öll stóru málin.
Dagmál Sigríður Andersen telur ógerlegt að stjórnin klári öll stóru málin.
Sigríður Andersen þingmaður Miðflokksins kveðst lítið skilja í æðibunugangi stjórnarliða við að reyna að keyra öll sín stóru mál í gegn á þessu þingi. Samkvæmt starfsáætlun á að senda þingið heim annan föstudag, þótt líklegt sé að það verði framlengt eitthvað

Sigríður Andersen þingmaður Miðflokksins kveðst lítið skilja í æðibunugangi stjórnarliða við að reyna að keyra öll sín stóru mál í gegn á þessu þingi. Samkvæmt starfsáætlun á að senda þingið heim annan föstudag, þótt líklegt sé að það verði framlengt eitthvað.

„Þingið kom seint saman [eftir kosningar] en þess þá heldur hefðu menn átt að stilla væntingum sínum í hóf varðandi framlagningu mála,“ segir Sigríður í viðtali við Dagmál í dag um hvernig þingstörfin blasa við henni, nú þegar senn dregur að þinglokum.

Sigríður segist hafa getað skilið þessa málamergð ef stjórnin vildi „flagga“ helstu málum, til þess síðan að undirbúa þau betur og taka mið af umsögnum og gagnrýni til þess að koma með þau aftur inn á þing í haust. Verkstjórn ríkisstjórnarinnar bendi hins vegar til annars.

„Ég skil vel að menn vilji koma sínum málum á framfæri, en kjörtímabilið er fjögur ár. Mér finnst eins og menn séu að þjappa öllum stóru málunum úr stefnuyfirlýsingunni inn á nokkra mánuði. Það er bara eins og menn búist við að þessi ríkisstjórn verði ekki hérna næsta haust,“ segir Sigríður.

Hún undrast hvað stjórnarþingmenn hafi verið feimnir við að tjá sig um helstu mál ríkisstjórnarinnar; að þingflokksformönnum undanskildum hafi þeir sig lítið í frammi í ræðustól Alþingis og raunar minna í mörgum þingnefndum en venja er. Vandræði ríkisstjórnarinnar minnki hins vegar ekki við það; hún virðist mjög sjálfbær um það.

Í viðtalinu er rætt um mörg helstu þingmálin og Sigríður er gagnrýnin á vinnubrögð ráðherra, sem láti vera að meta áhrif frumvarpa og vanræki rökstuðning í trausti þess að stjórnarmeirihlutinn kippi sér ekki upp við það.

Málefni Sigurjóns Þórðarsonar formanns atvinnuveganefndar ber einnig á góma í þættinum, framganga Víðis Sigurðssonar formanns allsherjarnefndar vegna mögulegrar veitingar ríkisborgararéttar og margt fleira.

Sigríður efar að þingið starfi lengur en til 17. júní, þótt margt geti gerst. Hins vegar sé ljóst að það sé ómögulegt fyrir ríkisstjórnina að koma öllum sínum málum í gegn. Hún komist ekki hjá því að forgangsraða þeim og semja við stjórnarmeirihlutann um greiða afgreiðslu mála í þinglok.