Afkoma Þórsmerkur ehf. versnaði um 139 milljónir króna á milli ára og var tap ársins 2024 rúmar 348 milljónir króna. Þórsmörk ehf. er móðurfélag Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins og mbl.is, Landsprents ehf., Póstdreifingar ehf

Afkoma Þórsmerkur ehf. versnaði um 139 milljónir króna á milli ára og var tap ársins 2024 rúmar 348 milljónir króna. Þórsmörk ehf. er móðurfélag Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins og mbl.is, Landsprents ehf., Póstdreifingar ehf. og Árs og dags ehf.

„Skýringin á versnandi afkomu er fyrst og fremst tölvuárásin sem Árvakur varð fyrir í fyrrasumar, sem olli miklu tjóni á tölvukerfum félagsins og raskaði starfsemi þess mjög eins og greint var frá í fréttum á þeim tíma,“ segir Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri og ritstjóri.

Tekjur samstæðunnar jukust um 159 milljónir króna og námu 4.944 milljónum króna í fyrra. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, minnkaði verulega og nam níu milljónum króna. Eignir samstæðunnar námu rúmum fjórum milljörðum króna og eiginfjárhlutfall er 18,5%.

Ríkið endurskoði starfsemi sína

„Þó að horft sé framhjá þeim einskiptiskostnaði sem fyrirtækið varð fyrir vegna árása tölvuþrjótanna er engu að síður ljóst að undirliggjandi rekstur er áfram mjög erfiður. Samkeppni helstu fjölmiðla hér á landi við ríkisfyrirtæki er afar þungbær,“ segir Haraldur. „Miðlar Árvakurs keppa við ríkisstyrkt Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði og veldur það miklu tekjutapi. Þá á Póstdreifing í erfiðri samkeppni við niðurgreidda starfsemi Íslandspósts, sem getur haldið verði niðri í krafti ríkisstyrkja. Afar mikilvægt er að ríkið endurskoði starfsemi þessara ríkisfyrirtækja, sem er helsti vandi þeirra íslensku einkareknu fjölmiðla sem reyna að halda úti víðtækri og almennri fréttaþjónustu.“

Haraldur segir að miðlar Árvakurs séu eftir sem áður afar sterkir og vinni stöðugt að nýjungum til að auka og bæta framboðið. „Sem dæmi um það er að fyrirtækið bauð nú í vor upp á nýjung, Mogga-appið, sem hefur verið mjög vel tekið af landsmönnum. Þá hefur sókn í þáttagerð á netinu, einkum með Spursmálum og Dagmálum, vakið verðskuldaða athygli og er orðin þýðingarmikill liður í þjóðmálaumræðu í landinu og mjög góð viðbót við hefðbundið efni í Morgunblaðinu og á mbl.is.“