Stuðningur Félagar úr Lionsklúbbi Grundarfjarðar, Skotfélagi Grundarfjarðar og Golfklúbbnum Vestarr þegar styrkirnir voru afhentir.
Stuðningur Félagar úr Lionsklúbbi Grundarfjarðar, Skotfélagi Grundarfjarðar og Golfklúbbnum Vestarr þegar styrkirnir voru afhentir. — Ljósmynd/Tómas Kristjánsson
Fjölmennt var á golfmóti á Bárarvelli síðastliðinn föstudag, 30. maí, þegar fulltrúar Lionsklúbbs Grundarfjarðar mættu þangað til þess að afhenda styrk til tveggja félaga í byggðarlaginu. Um var að ræða afrakstur af kútmagakvöldi Lions í marsmánuði síðastliðnum

Gunnar Kristjánsson

Grundarfirði

Fjölmennt var á golfmóti á Bárarvelli síðastliðinn föstudag, 30. maí, þegar fulltrúar Lionsklúbbs Grundarfjarðar mættu þangað til þess að afhenda styrk til tveggja félaga í byggðarlaginu. Um var að ræða afrakstur af kútmagakvöldi Lions í marsmánuði síðastliðnum. Fulltrúar tveggja félaga tóku á móti styrk upp eina milljón kr. hvort. Eru það peningar sem koma sér vel í mikilvægu starfi.

Þetta voru annars vegar Golfklúbburinn Vestarr sem á síðasta ári réðst í það stórvirki að kaupa landsvæðið sem golfvöllurinn stendur á í Bárarlandi og hins vegar Skotfélag Snæfellsness sem komið hefur upp glæsilegri aðstöðu fyrir skotfimi í Hrafnkelsstaðabotni. Nú síðast var skáli Golfklúbbsins Jökuls fluttur og honum komið fyrir á svæði skotfélagsins. Félagið stendur í miklum framkvæmdum um þessar mundir vegna fyrirhugaðs Evrópumóts í skotfimi síðla sumars.

Lionsklúbbur Grundarfjarðar hefur nú í rúmlega tíu ár staðið fyrir öflugum fjáröflunum. Þar ber hæst sjávarréttaveislu auk happdrættis með glæsilegum vinningum í lok febrúar eða byrjun mars. Hefur þessi viðburður notið æ meiri vinsælda. Lionsklúbburinn hefur á þessu starfsári styrkt ýmis verkefni í byggðarlaginu. Með því framlagi sem veitt var við upphaf golfmótsins 30. maí hefur klúbburinn styrkt hin ýmsu verkefni í samfélaginu um samtals 3,5 milljónir króna.

Höf.: Gunnar Kristjánsson