Fagmennska Pétur Jónsson og Sveinn Freyr Sævarsson á veitingastaðnum Tasty í Skútuvogi.
Fagmennska Pétur Jónsson og Sveinn Freyr Sævarsson á veitingastaðnum Tasty í Skútuvogi. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Þetta er vinsælt. Viðskiptavinirnir eru ánægðir með þetta,“ segir Pétur Jónsson, annar eigenda veitingastaðarins Tasty í Skútuvogi. Nýverið bættist nýr réttur á matseðil veitingastaðarins, sem sérhæfir sig í hamborgurum

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Þetta er vinsælt. Viðskiptavinirnir eru ánægðir með þetta,“ segir Pétur Jónsson, annar eigenda veitingastaðarins Tasty í Skútuvogi.

Nýverið bættist nýr réttur á matseðil veitingastaðarins, sem sérhæfir sig í hamborgurum. Sá flokkast líklega sem eftirréttur en ætti jafnvel að fá sinn eigin flokk, svo sérstakur er hann. Ekki er víst að allir myndu láta plata sig út í að smakka djúpsteikt Mars-súkkulaði en kúnnarnir á Tasty hika hvergi.

Um mánuður er síðan þessi réttur var kynntur til leiks á Tasty. Pétur segir að mörgum finnist spennandi að skella sér á eitt djúpsteikt Mars í eftirrétt. „Já, þetta er komið til að vera hjá sumum í desert. Þetta er svolítið heví en ég held að fólk leyfi sér þetta nú samt. Djúpsteikt Mars er kannski ekki það hollasta á markaðnum enda gefum við okkur ekki út fyrir það. Eigum við ekki bara að segja að þetta sé gott í hófi.“

Veitingamenn og sjoppueigendur hafa lengi leikið sér með súkkulaðistykki. Þannig mátti til dæmis fá Mars-súkkulaði hitað í örbylgjuofni í kaupfélagssjoppunni á Vopnafirði á níunda áratug síðustu aldar. Djúpsteikta útgáfan sækir þó fyrirmynd sína til Skotlands. Þar í landi er löng hefð fyrir því að veitingastaðir bjóði upp á djúpsteiktar útgáfur af ýmsum réttum.

„Já, við vissum af þessu frá Skotlandi og fannst það bara of gott til að vera ekki með þetta á seðli,“ segir Pétur.

Ólíkt Skotunum steikja Tasty-menn súkkulaðistykkin eftir pöntunum en í upprunalandinu bíða þau jafnvel tímunum saman í hitakössum. „Súkkulaðið er frosið þegar við setjum deig utan á það og djúpsteikjum. Annars myndi þetta bráðna og leka út um allt.”

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon