Ánægðar Unnur Thelma Gestsdóttir verslunarstjóri og Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri.
Ánægðar Unnur Thelma Gestsdóttir verslunarstjóri og Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri.
Verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi verður opnuð að nýju í dag, fimmtudaginn 5. júní eftir umfangsmiklar endurbætur. Þessi verslun hefur verið starfrækt í alls 12 ár og nú þótti kominn tími á yfirhalningu

Verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi verður opnuð að nýju í dag, fimmtudaginn 5. júní eftir umfangsmiklar endurbætur. Þessi verslun hefur verið starfrækt í alls 12 ár og nú þótti kominn tími á yfirhalningu. „Eftir endurbætur getum við betur mætt fjölbreyttum þörfum viðskiptavina og innleitt ýmsar nýjungar í takt við þarfir nútímans,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Opnunartími nú verður lengdur jafnhliða breyttri búð. Opnað verður klukkan 8 á morgnana, sem Guðrún telur viðskiptavini kunna vel að meta.

„Við leggjum sem endranær áherslu á ferskleika, fjölbreytt vöruúrval og hagstætt verð. Þá höfum bætt bæði flæði og rými fyrir viðskiptavini í versluninni,“ segir Guðrún. Hún bendir á að fjölmargir aðilar komi að svona verkefni og megi þar nefna starfsfólk Krónunnar og Festi, iðnaðarmenn og þjónustuaðilar ásamt birgjum. Þarna hafi samvinna, kraftur og metnaður verið lykilatriði svo að allt gengi vel og hratt fyrir sig. sbs@mbl.is