Franska þyrlumóðurskipið Mistral kom til Reykjavíkur í gær við krefjandi aðstæður sökum veðurs. Um borð í þessu 25 þúsund tonna herskipi eru franskir hermenn, þar af yfir 600 sjóliðar sem hljóta nú hagnýta þjálfun á alþjóðavettvangi
Franska þyrlumóðurskipið Mistral kom til Reykjavíkur í gær við krefjandi aðstæður sökum veðurs. Um borð í þessu 25 þúsund tonna herskipi eru franskir hermenn, þar af yfir 600 sjóliðar sem hljóta nú hagnýta þjálfun á alþjóðavettvangi. Um hernaðarverkefni er að ræða þar sem Frakkland hyggst styrkja viðveru sína á lykilsvæðum og samskipti sín við NATO-ríki. Skipið yfirgefur Ísland 9. júní. » 30