— AFP/Odd Andersen
Gera má ráð fyrir því að geymslur kjarnorkuendurvinnslustöðvar­innar Sellafield í Suffolk á Englandi haldi áfram næstu áratugi að leka hágeislavirkum vökva út í náttúruna. Gæti lekinn staðið yfir fram til ársins 2050, eða þar til búið verður að tæma …

Gera má ráð fyrir því að geymslur kjarnorkuendurvinnslustöðvar­innar Sellafield í Suffolk á Englandi haldi áfram næstu áratugi að leka hágeislavirkum vökva út í náttúruna. Gæti lekinn staðið yfir fram til ársins 2050, eða þar til búið verður að tæma elstu geymslur stöðvarinnar af geislamenguðum úrgangi. Á þriggja ára tímabili lekur úr geymsl­unum vökvi sem fyllt gæti fullgilda ólympíusundlaug af hágeislavirkum úrgangi. Sérfræðingar telja mengunina þó ekki ógna breskum almenningi. Er þetta meðal þess sem fram kemur í nýrri stöðuskýrslu um endurvinnsluverið.

Starfsemi hófst fyrst í Sellafield á fimmta áratug síðustu aldar og var full framleiðsla í gangi árin 1956 til 2003. Árið 2018 tóku menn fyrst eftir lekanum og síðan þá hafa aðrir minni opnast.