Altjón Þessir Birnir eru í hópi þeirra sem sprengdir voru í loft upp þegar yfir 100 árásardrónum var sleppt lausum á rússneskar herstöðvar.
Altjón Þessir Birnir eru í hópi þeirra sem sprengdir voru í loft upp þegar yfir 100 árásardrónum var sleppt lausum á rússneskar herstöðvar. — Ljósmynd/Airbus Defence
Drónaárás Úkraínuhers á fjóra herflugvelli djúpt inni í rússnesku landi síðastliðinn sunnudag hefur stóraukið líkur á stigmögnun átaka. Hættan á því er nú metin „óásættanleg“. Þetta segir Keith Kellogg, sérstakur erindreki Bandaríkjaforseta gagnvart Úkraínu, í viðtali við Fox News

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

Drónaárás Úkraínuhers á fjóra herflugvelli djúpt inni í rússnesku landi síðastliðinn sunnudag hefur stóraukið líkur á stigmögnun átaka. Hættan á því er nú metin „óásættanleg“. Þetta segir Keith Kellogg, sérstakur erindreki Bandaríkjaforseta gagnvart Úkraínu, í viðtali við Fox News.

„Hættan er að stóraukast. Þegar tekin er ákvörðun um að ráðast á andstæðinginn með þessum hætti, að vega alvarlega að þjóðaröryggi með því að granda vopnakerfum sem tilheyra kjarnorkuregnhlíf landsins, er óumflýjanlega verið að auka hættuna mikið. Og það er í raun útilokað að spá fyrir um hvað hin fylkingin mun gera í kjölfarið,“ segir Kellogg og heldur áfram: „Þetta snýst ekki endilega eingöngu um þær sprengjuflugvélar sem búið er að granda, tilfinningar spila hér einnig inn í. Úkraínumenn eru að sýna það og sanna að ekki standi til af þeirra hálfu að gefa neitt eftir.“

Kellogg segir Úkraínuher einnig hafa með árásinni hækkað rána og ógni hersveitir þeirra nú Rússlandi öllu. Óíklegt sé að Moskvuvaldið bregðist ekki við af fullri hörku.

NATO stóreflist sem fyrst

Úkraínuher segist hafa grandað 34 prósentum af öllum langdrægum sprengjuflugvélum Rússlands í drónaárásinni miklu 1. júní síðastliðinn. Vestrænar leyniþjónustur vinna nú að því að sannreyna þær fullyrðingar, m.a. með aðstoð gervitungla sem taka háskerpumyndir af umræddum herflugvöllum. Varnarmálaráðuneyti Úkraínu hefur þegar birt sumar þeirra ljósmynda og má sjá eina slíka hér til hliðar. Sýnir hún altjón á sprengjuvélum af gerðinni Tu-95, eða Birninum svonefnda. Vélar af þessari gerð eru langdrægar og hannaðar í þeim tilgangi m.a. að flytja kjarnavopn. Birnir hafa frá upphafi Úkraínustríðsins árið 2022 verið nýttir sem skotpallar fyrir stýriflaugaárásir á Úkraínu.

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir mikilvægt að aðildarríki varnarbandalagsins leggi meira af mörkum næstu árin. Brýnt sé að gefa verulega í þegar kemur að hervæðingu Evrópu, m.a. með stórfelldum fjárfestingum til hermála.

Höf.: Kristján H. Johannessen