Breytingar Heinemann tók við í maí.
Breytingar Heinemann tók við í maí. — Morgunblaðið/Egill Aaron
Tómar hillur hafa mætt ferðalöngum við komuna í fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli að undanförnu. Nýr rekstraraðili, þýska fyrirtækið Heinemann, tók við fríhöfninni í síðasta mánuði og er óhætt að segja að mótbyr hafi verið í rekstrinum

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Tómar hillur hafa mætt ferðalöngum við komuna í fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli að undanförnu. Nýr rekstraraðili, þýska fyrirtækið Heinemann, tók við fríhöfninni í síðasta mánuði og er óhætt að segja að mótbyr hafi verið í rekstrinum. Margir hafa kvartað yfir því að vöruúrval sé mun lakara en áður var og dæmi eru um að ekkert hvítvín hafi fengist í versluninni.

Frank Hansen, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free, lofar bót og betrun í skriflegu svari til Morgunblaðsins.

„Það fylgja því ýmsar áskoranir að hefja nýjan rekstur. Við hjá Ísland Duty Free höfum á síðustu dögum tekist á við nokkur vandamál sem snúa að flutnings- og aðfangamálum. Þessi mál hafa nú verið að mestu leyst og við erum að komast á beinu brautina hvað varðar vöruframboð í verslunum okkar.

Okkur þykir mjög leitt að hafa valdið viðskiptavinum okkar óþægindum og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að að tryggja að slíkt komi ekki fyrir aftur.“

Það er ekki bara hvítvínið sem viðskiptavinir hafa saknað. Í byrjun vikunnar var heldur ekki hægt að fá vinsælar tegundir eins og Aperol og Tanqueray-gin, svo dæmi séu tekin. Jafnframt hefur verið kvartað yfir því að íslenskt neftóbak hafi ekki verið fáanlegt. Til stendur að bæta úr því.

„Það er okkar markmið að bjóða fjölbreytt vöruframboð og þá sérstaklega af íslenskum vörum. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga og jákvæðni hjá íslenskum framleiðendum í okkar garð,“ segir Hansen.

Þá hefur einnig verið bent á að vöruverð sé í einhverjum tilvikum hærra en var hjá fyrri rekstraraðila fríhafnarinnar. Íslenskt brennivín kostar nú 4.490 krónur í komuverslun en kostaði 4.399 krónur hjá fyrri rekstraraðila. Einn lítri af Tanqueray-gini kostaði 3.999 krónur í brottfararverslun hjá fyrri rekstraraðila en hefur nú hækkað í 4.490 krónur. Ekki var hægt að bera saman verðið í komuverslun því varan var ekki til.

Hansen segir að vöruverð sé alltaf háð fjölmörgum þáttum. „Af þeim sökum getur verð einstakra vara breyst lítillega, annaðhvort lækkað eða hækkað. Hins vegar leggjum við okkur alltaf fram um að bjóða viðskiptavinum okkar góð og hagstæð tilboð, gott virði og fjölbreytt vöruúrval.“

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon