Plássið svonefnda í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns hefur af Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfisráðherra verið staðfest sem verndarsvæði í byggð, að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps. Svæðið er um 3,7 hektarar að stærð og nær um elsta hluta byggðar bæjarins. Felst sérstaða þess í menningarsögulegum arfi gamalla húsa og fjölda fornminja sem tengjast sögu atvinnulífs, verslunar, sjósóknar og þróunar þéttbýlis.
Innan verndarsvæðisins er að finna þyrpingu 16 ólíkra húsa frá ýmsum tímabilum. Þá er byggingarlína húsa við Kolbeinsgötu, elstu götuna í kauptúninu, samfelld og hefur varðveist til dagsins í dag. Fjögur af elstu húsum verndarsvæðisins hafa verið endurgerð, það er Vopnafjarðarkirkja sem byggð var á árunum 1902-1903, Framtíðin (byggt um 1898), Kaupvangur (1884) og Guðjohnsenshús (1880).
„Bæjarstæðið er fallegt og byggðin í kringum miðbæinn hefur verndargildi. Heimamenn hafa hlúð vel að byggingararfinum og hafa sýnt metnað í að varðveita svipmót svæðisins,“ segir ráðherra. sbs@mbl.is