Eyrún Jónsdóttir
Eyrún Jónsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Samkvæmt gögnum Hjartaverndar hafa hjarta- og æðasjúkdómar reynst Íslendingum skæðastir. Þar á eftir koma krabbamein, sem eru sífellt að aukast.

Eyrún Jónsdóttir og Þórdís Lind Leiva

Í dagsins amstri gefst mörgum lítill tími til að rýna í hvað framtíðin gæti borið í skauti sér, við rjúkum milli funda og fjölskylduboða, sækjum og skutlum og reynum að gera okkar besta.

Flest hugum við vel að veraldlegum eigum okkar enda margir unnið hörðum höndum að því að koma upp heimili. Þetta gerum við m.a. með því að tryggja vel bílinn, heimilið, hjólin og dýrari hluti ef einhverjir eru. Í dag passa líka margir upp á að tryggja gæludýrin sín – en gleyma á sama tíma heimilisfólkinu, þar með talið sjálfum sér!

Heilsufarsstaðan í dag – og þróunin fram undan

Samkvæmt gögnum Hjartaverndar (Læknablaðið, 2017) hafa hjarta- og æðasjúkdómar reynst Íslendingum skæðastir. Þar á eftir koma krabbamein, sem eru sífellt að aukast – ekki síst vegna breytts lífsstíls, hreyfingarleysis og annarra áhættuþátta. Þá eru teikn á lofti varðandi aukna tíðni annarra sjúkdóma, sem dæmi eru sykursýki og offita á hraðri uppleið. Lungnakrabbamein veldur flestum dauðsföllum krabbameina, en brjóstakrabbamein og blöðruhálskirtilskrabbamein eru meðal þeirra meina sem greinast oftast. Ristilkrabbamein er nú þriðja algengasta meinið – og tilfellum hefur fjölgað meðal fólks undir fimmtugu. Spár rannsóknarseturs Krabbameinsfélagsins gera ráð fyrir allt að 57% aukningu krabbameinstilfella á Íslandi fyrir árið 2040.

Þetta eru staðreyndir sem erfitt er að horfast í augu við, en meðvitund og undirbúningur geta skipt máli. Ekki bara til að standa af sér erfið veikindi heldur til að ná bata á sínum eigin forsendum.

Alltaf á leiðinni að tryggja mig

Margir segjast lengi hafa ætlað að tryggja sig og sína en ekki gefið sér tíma til að skoða, aðrir telja að líf- og heilsutryggingar séu bara fyrir þá sem eru veikir fyrir. En staðreyndin er sú að þegar eitthvað kemur upp á með heilsuna – þá er enginn tími til að undirbúa sig. Þá þarf rými, stuðning og hugarró. Góð trygging getur veitt svigrúm til að einbeita sér að batanum í stað þess að þurfa að takast á við fjárhagslegar áhyggjur.

Þegar lífið breytist skyndilega

Hvort sem um er að ræða alvarleg veikindi, slys eða skyndileg veikindi sem hafa áhrif á getu til að vinna, þá getur tekjutap orðið mikið. Margir treysta á reglulegar tekjur og hafa takmarkaðan varasjóð. Þess vegna getur sjúkdómatrygging skipt sköpum. Hún veitir fólki svigrúm til að draga sig í hlé frá vinnu, takast á við veikindin og einbeita sér að bata í stað þess að hafa áhyggjur af reikningum og skuldbindingum.

Það er eðlilegt og sjálfsagt að tryggja hlutina sem skipta okkur máli. En gleymum ekki okkur sjálfum, mér og þér. Ef þú ert ekki með líf- eða sjúkdómatryggingu þá er rétti tíminn til að fara í málið núna. Það tekur minni tíma en þú heldur.

Eyrún er hjúkrunarfræðingur og Þórdís forstöðumaður hjá Verði, tryggingum.