Fjöldi Íslendinga með Parkinson-sjúkdóminn mun tvöfaldast á næstu 15 árum. Beinn kostnaður ríkisins vegna sjúkdómsins mun fara úr fimm milljörðum króna í tíu milljarða. Þetta kemur fram í nýrri ­skýrslu sem birt var í gær og Parkinson-samtökin létu vinna fyrir sig

Fjöldi Íslendinga með Parkinson-sjúkdóminn mun tvöfaldast á næstu 15 árum. Beinn kostnaður ríkisins vegna sjúkdómsins mun fara úr fimm milljörðum króna í tíu milljarða.

Þetta kemur fram í nýrri ­skýrslu sem birt var í gær og Parkinson-samtökin létu vinna fyrir sig. Þar segir að sífellt hærra hlutfall fólks fái Parkinson, þar á meðal yngra fólk. Orsakir fjölgunar sjúklinga með Parkinson eru ekki þekktar en lengri lífaldur þjóðarinnar veldur því að fleiri geta búist við því að greinast með sjúkdóminn einhvern tímann á ævinni.

Þá er lagt til að ríkið auki framlög sín til endurhæfingar þeirra sem greinast með Parkinson hér á landi, en framlag Sjúkratrygginga til Parkinson-samtakanna nam 27 milljónum króna. Rekstrarkostnaður samtakanna var 122 milljónir króna.