Skammtímastæði Enginn virðist fylgja reglum bílastæðisins.
Skammtímastæði Enginn virðist fylgja reglum bílastæðisins. — Morgunblaðið/KHJ
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði leita leiða til að leysa úr þeim vanda sem skapast hefur á bílastæðum víðs vegar um bæinn. Bílastæðið við Hótel Velli er merkt sem skammtímastæði en er orðið að geymslusvæði fyrir hjólhýsi, bílhræ og rusl eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær

Diljá Valdimarsdóttir

dilja@mbl.is

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði leita leiða til að leysa úr þeim vanda sem skapast hefur á bílastæðum víðs vegar um bæinn. Bílastæðið við Hótel Velli er merkt sem skammtímastæði en er orðið að geymslusvæði fyrir hjólhýsi, bílhræ og rusl eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir þetta afskaplega slæmt fyrir ásýnd hverfisins. Bæjarstjórn vinni hörðum höndum þessa dagana við að finna lausn á bílastæðamálum í Hafnarfirði.

„Við erum að skoða ýmsar lausnir núna og höfum verið að ræða þetta í bæjarráði. Við erum að reyna að beita aðgerðum til að bregðast við þessu, bæði á þessu svæði og öðrum þar sem reglur um skammtímastæði eru ekki virtar,“ segir Valdimar.

Valdimar segir áform um að greiningarvinna hefjist í sumar á bílastæðum og í framhaldi verði bílastæðasjóður Hafnarfjarðarbæjar settur á laggirnar.

Stæðin eru í eigu bæjarins og er yfirvöldum heimilt að fjarlægja bíla sem ekki virða reglurnar. Það virðist þó ekki hafa verið gert í marga mánuði og hafa íbúar sent fjölda ábendinga til bæjarins vegna sóðalegrar umgengni og bílhræja á bílastæðunum. Valdimar segir að nauðsynlegt sé að finna stað í bænum þar sem leggja megi stærri bílum og hjólhýsum gegn gjaldi.

Höf.: Diljá Valdimarsdóttir