Rétt rúmlega helmingur landsmanna segist ánægður með störf Höllu Tómasdóttur sem forseta Íslands. Mælist ánægja með hennar störf núna 52% og er það mesta ánægja sem hún hefur mælst með síðan hún tók við embætti um mitt síðasta ár. Halla á þó enn langt í land með að ná sambærilegum vinsældum og forveri hennar, Guðni Th. Jóhannesson, en á milli 70 og 85% landsmanna voru ánægð með störf hans sem forseta Íslands.
Þetta er meðal þess sem sjá má í nýrri mælingu Maskínu á ánægju með störf forsetans, en könnunin fór fram frá 9. til 14. maí sl. Konur eru mun ánægðari með störf Höllu en karlar.
Heillar helst Flokk fólksins
Athygli vekur að stuðningsmenn Flokks fólksins virðast almennt ánægðastir með störf Höllu, eða tæplega 71%, en stuðningsmenn Vinstri grænna og Pírata eru óánægðastir, en aðeins 15,4% og 27,5% kjósenda þessara flokka segjast ánægð með störf Höllu.
Kjósendur Samfylkingar eru almennt ánægðir með störf Höllu, en það segjast 58,6% vera og 54,9% kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Þar á eftir koma kjósendur Viðreisnar og Framsóknarflokks með um 53% hjá báðum flokkum.
Konur segjast í 65,5% tilfella vera ánægðar með störf Höllu, en hins vegar eru aðeins 40,3% karla ánægð með störf hennar. Afstaða fólks eftir aldri er nokkuð jöfn, en þó sker aldurshópurinn 50-59 ára sig úr, en þar mælist ánægjan 43,6%. Ekki er marktækur munur á ánægju landsmanna eftir menntunarstigi, en ánægjan er aðeins minni hjá heimilum með hærri tekjur.
Guðni mældist hátt
Ánægja með störf Ólafs Ragnars Grímssonar á árunum 2011 til 2015 reyndist á bilinu 49% upp í 55%, en síðasta árið mældist ánægjan 59%.
Fyrsta ár Guðna mældist ánægja með störf hans að meðaltali 71% en jókst svo og var að meðaltali um 72% til 82% þau átta ár sem hann sat á forsetastóli.
Þegar Halla tók við mældist hún fyrst með 45%, en ánægjan jókst á fjórða fjórðungi síðasta árs upp í 50% áður en hún minnkaði aftur á fyrsta ársfjórðungi niður í 46%.