Sigmar Guðmundsson
Sigmar Guðmundsson
Eftir kosningarnar 2021 var þáverandi ríkisstjórn með það efst á forgangslistanum að fjölga ráðherrastólum að óþörfu. Með tilheyrandi kostnaði. Það hefði því ekki átt að koma neinum á óvart þegar ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks…

Eftir kosningarnar 2021 var þáverandi ríkisstjórn með það efst á forgangslistanum að fjölga ráðherrastólum að óþörfu. Með tilheyrandi kostnaði.

Það hefði því ekki átt að koma neinum á óvart þegar ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins lét það verða sitt fyrsta verk fyrr á þessu ári að fækka ráðuneytum aftur og spara með því 350 milljónir króna á ári.

Auðvitað er þetta ekki há upphæð í stóra samhenginu en allt skiptir þetta máli. Þegar við förum betur með almannafé skapast traust og svigrúm til að styrkja kerfið þar sem þörfin er brýnust. Við getum til dæmis lagt málin þannig upp að með þessari einföldu aðgerð hafi ný ríkisstjórn tryggt að bráðnauðsynleg meðferðarúrræði verði opin í sumar, ólíkt því sem gerst hefur undanfarin ár.

Minningin um lokunina síðasta sumar er enn í fersku minni. Einstaklingar sem stigu erfið skref og leituðu sér hjálpar fengu skilaboð um að hringja aftur „eftir frí“. Heilu fjölskyldurnar fóru inn í sumarið í óvissu og það sem er alvarlegast, dauðsföll má rekja til þessa sumarlokana. Það er óendanlega sorglegt og segir allt um hversu mikið er í húfi.

Ný ríkisstjórn hefur tekið þetta mál föstum tökum og tryggt sumaropnun þessara gríðarlega mikilvægu úrræða. Fíkn tekur sér nefnilega ekki frí; kvíði og þunglyndi fylgja hvorki dagatali né veðurspá. Heilbrigðiskerfi sem lokar vegna rangra ákvarðana sendir kolröng skilaboð. Slík skilaboð munum við ekki senda.

Nýjar fjárheimildir renna til SÁÁ, Krýsuvíkur, Hlaðgerðarkots og fleiri úrræða. Göngudeild Landspítalans fær aukið bolmagn; Laufeyjarteymið, Ylja og Frú Ragnheiður geta tekið á móti fleirum. Biðlistar styttast og órofin þjónusta léttir á bráðaþjónustunni, dregur úr kostnaði vegna langvarandi veikinda og veitir fólki von þegar mest á reynir.

Þetta er skynsamleg nýting fjármuna. Að færa fé frá efsta lagi stjórnkerfisins yfir í úrræði sem bjarga mannslífum. Þannig sýnum við að orð og verk haldast í hendur. Að hægt sé að treysta því sem við segjum.

En við erum rétt að byrja. Næstu skref verða að styrkja forvarnir, efla eftirfylgni og tryggja að fólk falli ekki á milli kerfa. Fjárfesting í heilbrigðismálum er ekki útgjaldavandi heldur arðbær ákvörðun um mannauð þjóðarinnar.

Þegar fólk horfir til okkar stjórnmálamannanna þarf það að fá á tilfinninguna að dyrnar standi opnar, líka í júlí. Það er sú forgangsröðun sem Viðreisn stendur fyrir. Við lofum ekki öllu, en það sem við lofum, það stendur. Þannig höfum við ávallt unnið og þannig munum við áfram vinna. Alla mánuði ársins.

Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. sigmar.gudmundsson@althingi.is

Höf.: Sigmar Guðmundsson