Diljá Valdimarsdóttir
Egill Aron Ægisson
Niðurstöður skýrslu um það sem fór miður við framkvæmdir á leikskólanum Brákarborg voru birtar í gær. Ljóst er að byggingin uppfyllti ekki kröfur um burðarvirki samkvæmt stöðlum um burðarþol og jarðskjálfta. Gallar voru í burðarvirkishönnun og framkvæmdum en þær hófust á byggingu leikskólans án fullnægjandi burðarvirkisútreikninga og samþykktra teikninga.
Leikskólanum Brákarborg var lokað sumarið 2024 þegar í ljós kom að reiknað álag á ásteypulagi og torfi á þaki leikskólans var meira en tilgreint var á teikningum. Sprungur voru byrjaðar að myndast í veggjum og dyrakarmar teknir að skekkjast áður en mistökin uppgötvuðust. Starfsemi leikskólans var flutt í tímabundið húsnæði í Ármúla.
Heildarkostnaður við verkið fór langt fram úr áætlun og má rekja til viðgerða á burðarvirki sem hefði vel verið hægt að komast hjá ef útreikningar um burðarþol hefðu verið réttir.
Málið er slæmt að öllu leyti
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir málið vera slæmt að öllu leyti. Borgin þurfi að fyrirbyggja að slík mistök gerist aftur. „Þetta kallar á viðbrögð og vinnu sem þarf að eiga sér stað. Þetta varpar ljósi á marga ágalla allt frá hönnunarferlinu og framkvæmdinni sem leiðir til þess að byggingin standist ekki kröfur.“
Aðspurð segir Líf marga bera ábyrgð á því sem fór úrskeiðis.
„Ég held að hver og einn þurfi að axla ábyrgð og það á einnig við um borgina. Borgin þarf að taka til sín það sem er gagnrýnt í skýrslunni og tryggja að slíkt komi aldrei fyrir aftur. Hver verður að sjá sína sök í þessu máli og gera betur í framhaldinu.“
Gefur borginni falleinkunn
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir nýja skýrslu um Brákarborg gefa stjórnsýslu borgarinnar algjöra falleinkunn. Hildur segir borgina skorta kostnaðarvitund og aðhald þegar komi að uppbyggingu í borginni.
Framkvæmdir hófust á leikskólanum án fullnægjandi burðarvirkisútreikninga og samþykktra teikninga. Hildur segir burðarvirkishönnunina það alvarlegasta í málinu. „Inni í þessu húsi voru lítil börn og þarna hefði getað orðið mjög alvarlegt slys,“ segir Hildur og nefnir að margt hefði mátt betur fara í framkvæmdunum.
Áætlað er að viðgerðum á leikskólanum ljúki í haust og hægt verði að taka á móti börnum í framhaldinu.